fyrirkomulag almannavarna.
Virðulegi forseti. Ég vil minna hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra á að í matsbeiðni ráðuneytisins segir orðrétt:
„Matsbeiðandi telur sig eiga kröfu á hendur þeim aðilum, sem áttu þá hagsmuni sem forðað var frá tjóni með aðgerðum matsbeiðanda, um endurgreiðslu hluta þess kostnaðar sem lagt hefur verið í.“
Skýrara verður þetta ekki. Ríkissjóður er kominn með formlega matsbeiðni inn í dómskerfið á þeirri forsendu að ríkið telji sig eiga kröfur á hendur þessum fyrirtækjum. Spurning mín til hæstv. ráðherra er því einföld: Stendur hann við þessa matsbeiðni og þessa kröfu eða hyggst hann draga hana formlega til baka og viðurkenna að almannavarnir eru ekki óbeðinn erindisrekstur gagnvart fólki og fyrirtækjum á hamfarasvæðum?
Í 32. gr. laga um almannavarnir segir að kostnaður vegna skyldna ríkisins á sviði almannavarna skuli greiddur úr ríkissjóði. Í ljósi þess vil ég að lokum spyrja hæstv. ráðherra: Telur hann að það sé eðlilegur skilningur á almannavörnum að ríkið reyni eftir á að innheimta þennan kostnað hjá þeim sem hafa búið við eldgos, rýmingar, tekjutap og óvissu eða hyggst hann halda þessari stefnu til streitu og gera hana að fordæmi fyrir framtíðaraðgerðir í almannavörnum? Ætlar fjármálaráðherra nú að rjúfa þá þjóðarsátt að í erfiðleikum stöndum við, íslenska þjóðin, saman?