kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni framsöguna. Ég hef ekkert að athuga við innihald þessa frumvarps nema það sem vantar í þetta frumvarp. Ég hef lagt fram breytingartillögu sem lýtur nákvæmlega að því sem hv. þingmaður kom inn á, að gefa dreifingu ösku frjálsa. Ég heyri á hans orðum hér í pontu og í nefndaráliti að það sé almennur stuðningur við það í nefndinni og það er það sama og ég hef heyrt hér á göngum Alþingis, bæði frá þingmönnum sem sitja í hv. allsherjar- og menntamálanefnd en líka öðrum þingmönnum. Nú liggur þessi breytingartillaga fyrir og mér er það ljóst að lögfræðingar á nefndasviði hafa gert athugasemd við það hvort hún raunverulega falli að markmiðum þessa frumvarps sem hér er undir. Ég vil nú reyndar meina að þótt frumvarpi þessu sé kannski fyrst og fremst ætlað að leysa ákveðin vandamál sem uppi eru í líkhúsum landsins — þ.e. að þau séu yfirfull og lík séu þar geymd lengur og þar af leiðandi þurfi að heimila líkhúsum að taka fyrir það gjald, sem er bara eðlilegt og ég styð heils hugar — þá megi vel færa rök fyrir því að öskukar taki minna pláss heldur en líkkista þannig að það að gefa dreifingu ösku frjálsa, sem myndi þá líka leiða til þess að fólk fengi öskukarið í hendurnar og gæti ráðstafað því sjálft, myndi sem sagt að einhverju leyti líka leysa vandamál líkhúsanna. Eins og ég segi hef ég lagt fram breytingartillögu þess efnis og uppi hafa verið vangaveltur um lögmæti hennar eða hvort þetta falli að. Mig langar því að spyrja hv. þingmann: Er það rétt skilið hjá mér að ef ekki væru uppi vangaveltur um það hvort þessi breytingartillaga félli að markmiðum frumvarpsins sem slíks, þá væri við hana mikill stuðningur í hv. allsherjar- og menntamálanefnd?