kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Frú forseti. Það er réttur skilningur hjá hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur að í umfjöllun nefndarinnar var mikið um þetta rætt, þessa breytingartillögu og síðan kom fram þessi athugasemd um formið á þessu. Okkar tillaga í málinu var að lagt yrði fram sérstakt frumvarp og þingmaðurinn hvattur til að leggja fram frumvarp sem hún hefur gert áður á þinginu um þetta. Mig langar bara að árétta það hér í ræðustól að eins og ég hef margoft sagt þá finnst mér að þingmannamál fái oft litla framgöngu og komi sjaldan til fullrar vinnslu í nefndum. Það er fullur vilji í allsherjar- og menntamálanefnd og ég ætla að fullvissa þingmanninn um það að ef fram kemur slíkt frumvarp mun nefndin senda það til skoðunar, taka til fullrar vinnslu í nefndinni og skila því af sér inn í 2. umræðu. Það er fullur vilji fyrir því í nefndinni að gera það og ég tel efni breytingartillögunnar vera gott. Þetta lagatæknilega atriði sem hv. þingmaður nefndi þvældist svolítið fyrir okkur og þess vegna erum við stödd með þetta eins og þetta er núna. Það er mikill vilji í nefndinni, hjá bæði meiri hluta og minni hluta, að taka þetta mál upp á þeim nótum sem hv. þingmaður hefur fjallað um hér, að mér skilst í nokkuð mörgum frumvörpum hingað til. Nú er kannski tími til kominn að við tökum frumvarpið til fullrar vinnslu í nefndinni og komum því síðan áfram í 2. umræðu í þingsal.