kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni þetta svar og þessa stuðningsyfirlýsingu við frumvarpið mitt sem er þegar komið fram og ég bara vona, virðulegur forseti, að ég fái tækifæri til að mæla fyrir því fljótlega. Ég veit að það er með lágt númer enda kom það fram á fyrstu dögum þingsins og ég hlakka til að fá að mæla fyrir því. Ég treysti því að hv. þingmaður sem formaður allsherjar- og menntamálanefndar muni sjá til þess að það fái góða umfjöllun í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. Ég tek eftir því að í nefndarálitinu er einmitt vísað til þess að hvetja til heildarendurskoðunar á lagabálknum. Ég er því ekki mótfallin, alls ekki. Raunhæfni segir mér þó það að í dómsmálaráðuneytinu séu risastór mál og dauðinn hefur kannski ekki fengið mesta athygli þar og það er að einhverju leyti skiljanlegt þegar við erum með útlendingamálin, löggæslumálin, almannavarnamálin, fangamálin og örugglega fleiri mál sem hægt væri að telja til sem eru mjög brýn. Ég hef því skilning á því að hæstv. dómsmálaráðherra þurfi kannski að beina kröftum ráðuneytisins í þá málaflokka þannig að ég held að það færi einstaklega vel á því að við myndum spara ráðuneytinu sporin og fjalla um þetta frumvarp sem hér hefur komið fram nokkrum sinnum. Ég hlakka til að fá vonandi tækifæri til þess fljótlega að mæla fyrir því og ég treysti á stuðning hv. þingmanns við vinnslu þess.