157. löggjafarþing — 36. fundur,  20. nóv. 2025.

kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.

113. mál
[11:29]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Víðir Reynisson) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Eins og ég kom inn á í mínu fyrra andsvari þá var umfjöllun í nefndinni mjög jákvæð og sá sem hér stendur telur fulla ástæðu til að vinna þetta mál og koma því áfram. Það er mjög margt þarna sem hefur verið ákall um í samfélaginu og það er hægt að gera þetta mjög vel. Það eru þarna atriði sem hafa komið fram í fyrri frumvörpum og eru í því frumvarpi sem liggur hér og bíður afgreiðslu, sem gera það að verkum að það er hægt að gera þetta mjög vandað. Það er hægt að gera þetta mjög vel. Það er hægt að auka á fjölbreytileika minningarreita og annað slíkt sem hægt er að setja upp og gefur þá fjölskyldum líka tækifæri á að minnast sinna ástvina með góðum hætti.

Ég tek undir að verkefnaálag er í dómsmálaráðuneytinu og það kom einmitt fram í vinnslu nefndarinnar þegar við ræddum við gesti að fyrir mjög margt löngu hefði verið búið að kalla eftir endurskoðun á þessum lagabálki. Eins og hv. þingmaður fór hér yfir hafa annir í ráðuneytinu orðið til þess að þetta mál hefur farið aftur fyrir aftur og aftur. Núna er tækifæri til þess að taka a.m.k. þetta skref sem getur bara verið gott innlegg fyrir vinnu ráðuneytisins í framhaldinu.