breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sínar ábendingar. Hv. þingmaður er auðvitað vel kunnugur heilbrigðiseftirliti og störfum þess í gegnum tíðina. Það sem ég vildi kannski bara rétt benda á hérna er að þessi 7. gr. felur í sér heimild til ráðherra til að mæla fyrir um að tilteknar atvinnugreinar eða atvinnustarfsemi sé skráningarskyld frekar en starfsleyfisskyld. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður kom inn á að það var svona ákveðið hökt í þessu fyrst þegar skráningarskyldan kom til sögunnar en mér skilst nú að það hafi allt verið lagað hjá Umhverfisstofnun eftir því sem fram liðu stundir og að mörgu leyti hafi þetta gefist vel. Við sjáum það t.d. bara þegar ég kem með drög að reglugerðinni í samráðsgátt, um að fleiri atvinnugreinar fara í skráningarskyldu í stað þess að vera starfsleyfisskyldar, þá kemur bara mjög skýr hvatning frá atvinnulífinu, frá samtökum atvinnurekenda, um að halda áfram á þeirri braut. Þetta eru auðvitað sjónarmið sem er full ástæða til að umhverfis- og samgöngunefnd taki til greina og velti fyrir sér. Þetta frumvarp, eða svona fyrri útgáfa af því — það hefur verið að þéttast með hverri framlagningunni — var tekið út úr umhverfis- og samgöngunefnd á síðasta þingi. Þá fékk þessi 7. gr. að halda sér eins og hún er og ég tel skynsamlegt að ráðherra hafi í hendi sér að geta mælt fyrir um að tilteknar atvinnugreinar, sem heyra líklega undir 4. viðauka frekar en 2. viðauka, séu skráningarskyldar frekar en starfsleyfisskyldar og þá sérstaklega með tilliti til þess langa auglýsingafrests sem fylgir starfsleyfunum sem getur orðið mjög íþyngjandi og aðilar hafa svo sannarlega verið að reka sig á undanfarin misseri og sem við höfum þurft að grípa sérstaklega inn í með tilteknum reglugerðarbreytingum til að vinda ofan af. (Forseti hringir.) Ég held því að þetta sé breyting í rétta átt.