157. löggjafarþing — 40. fundur,  3. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:20]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég kem hingað upp til að eiga orðastað við hv. þm. Aðalstein Leifsson af því að ég upplifði það þegar ég hlustaði á ræðu hans, sem var prýðisgóð, að ég væri að hlusta á Viðreisn fyrir kosningar. Viðreisn sem lofaði að hækka ekki skatta, Viðreisn sem ætlaði ekki að auka útgjöld og ég var sammála mjög mörgu sem hv. þingmaður sagði. Ég hafði nú kannski svipaðar spurningar og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson sem ég fæ kannski aðeins að fylgja eftir.

Hv. þm. Aðalsteinn Leifsson minnist hér á hlutfall vergrar landsframleiðslu. Það er nú þannig að ef heimili eyðir meira en það aflar safnar það skuldum. Ef það kemur launahækkun inn á heimilið er kannski skynsamlegt að fara að greiða niður skuldir í stað þess að auka við útgjöldin en alltaf á að auka við. Spurningin mín er kannski: Hefði ekki verið nær, í staðinn fyrir að auka útgjöld, að draga úr skuldum ríkissjóðs? Skuldir ríkissjóðs voru nú eitt af því sem var minnst á fyrir kosningar og í ræðu hér áðan, að þær þyrftu að minnka. Þessi ríkisstjórn er að auka við skuldir ríkissjóðs. Það er staðan. Vissulega minnkaði hún skuldirnar núna út af uppgjörinu við ÍL-sjóð og út af því að hún seldi Íslandsbanka, sem kom inn sem hluti af stöðugleikaframlagi í tíð ríkisstjórnar hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Þess vegna var hægt að selja Íslandsbanka. Þess vegna gat þessi ríkisstjórn borgað niður skuldir. En hvað gerir hún? Hún heldur ekki áfram. Á næsta ári ætlar hún að bæta í, taka meiri lán. Ég spyr: Hvað finnst hv. þingmanni um það að í staðinn fyrir að hugsa alltaf um hlutfall af vergri landsframleiðslu, að reyna að standa okkur betur og byrja að borga niður skuldir?