fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir afbragðsgóða yfirferð og góða ræðu. Það væri alveg hægt að vera hér í mörgum tveggja mínútna andsvörum við þessa yfirferð hv. þingmanns og mjög margt sem mig langaði að ræða hér en kannski fyrsta spurningin sem mig langar að spyrja hv. þingmann er, eins og hann kom inn á og við höfum verið að ræða, með þessa 143 milljarða aukningu á milli ára sem er ansi rífleg. Ég held að hún hafi verið í 75 síðast og fengum við skammir fyrir m.a. frá þeim sem sitja nú við stjórnvölinn, að þetta væri nú heldur vel í lagt hjá okkur að hækka um 75. Nú erum við komin í 143, hvort 117 hefði ekki bara verið fín tala? Þá værum við með milljarð í plús ef það er 25 milljarða halli. Hefði ekki bara verið skynsamlegra að fara með raunhækkun upp í 118? Ég held að það hefðu allir orðið bara þokkalega sáttir með að hækka um 118 milljarða. Það hefði þótt vel rausnarlegt en þá hefðum við náð hallalausum fjárlögum til að setja hlutina í samhengi.
Annað sem mig langar að nefna við hv. þingmann sem ég fór að hugsa bara hérna meðan hv. þingmaður var í ræðu, af því að við höfum verið að tala um hallalaus fjárlög 2027. Við erum með í gildi í fjármálaáætlun sem var samþykkt síðasta vor af núverandi ríkisstjórn sem segir, með leyfi forseta, að í upphaflegu tillögunni sé gert ráð fyrir 1,1 milljarða kr. halla 2027. Eftir endurmat er hann kominn í mínus 4. Finnst hv. þingmanni ekki svolítið sérstakt að það sé alltaf verið að tala um hallalaus fjárlög 2027 þegar í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar hér er gert ráð fyrir mínus 6.
?