fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir hans erindi. Mig langar aðeins að spyrja hv. þingmann, hann nefndi hér í allyfirgripsmikilli yfirferð sinni að það væri 12% lækkun til byggðarmála, ef hv. þingmaður vildi kannski drepa á því helsta til hvers hann er að vísa þar, hvað liggur að baki þessum 12%? Svo var ég reyndar búinn að gefa forseta merki um að ég vildi komast í andsvar við hv. þingmann og var með mjög afmarkað umfjöllunarefni í þeim spurningum. Skömmu síðar vék hv. þingmaður nákvæmlega að þeim þætti sem ég hugðist spyrja út í en þó ekki svo að ekki væri rúm fyrir ítarlegri spurningar og þær varða erfðafjárskattinn. Hv. þingmaður tjáði sig hér á svipaðan hátt og við höfum fleiri gert í dag og nefndi réttilega að það eru ekki einu sinni bara þingmenn stjórnarandstöðu sem hafa gert það. Mig langar hins vegar, af því að nú er hv. þingmaður bóndi og þekkir mjög vel til í þessum málaflokki, að spyrja: Hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér að kynslóðaskipti gangi í landbúnaði hér á næstu árum fari þetta í gegn eins og þetta er skrifað í frumvarpinu?