157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

forgangsröðun samgönguáætlunar.

[11:27]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Ég þakka forsætisráðherra fyrir svarið. Hins vegar er upplifun Austfirðinga sú að hér sé bara um svik að ræða. Engar framkvæmdir í fjórðungnum næstu árin. (Gripið fram í: Ha? )Í rauninni er líka verið að taka samgönguáætlunarferlið og ýta því til hliðar. Samgönguáætlun gengur út á að það er verið að undirbúa framkvæmdir, það er verið að setja fjármuni í framkvæmdir. Síðan er þeim bara kastað hér beint út í hafsauga.

Mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort landsmenn megi þá í rauninni núna reikna með því að á fjögurra ára fresti komi ný ríkisstjórn og hún stöðvi allan undirbúning framkvæmda og breyti algerlega forgangsröðuninni. Eru hugsanlega einhver áform uppi hjá ríkisstjórninni um að breyta ferli samgönguáætlunar? Er þetta eitthvert verkfæri sem sveitarfélög og íbúar í landinu geta treyst áfram eða á að gera breytingar á þessu? Þetta setur eflaust strik í reikninginn varðandi traust á framhaldinu á framkvæmdum hér í landinu.