157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

forgangsröðun samgönguáætlunar.

[11:29]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Það sem rýrir traust á stjórnmálunum er þegar fólk segir eitthvað án þess svo að gera það í áraraðir, þegar fólk setur eitthvað á blað án þess að fjármagna það. Já, það er erfitt að taka ábyrgð. Það er erfitt að taka af skarið. Það er erfitt að velja og það er erfitt að forgangsraða. Ég er sammála því. Það er ekki rétt að það gerist ekkert í gangamálum næstu þrjú árin. Við munum hefja framkvæmdir í lok þessa árs við Fljótagöng, sem er líka erfiður staður. Það eru erfiðir samgöngukaflar úti um allt land. Við munum setja það í algjöran forgang að hefja undirbúning Fjarðaganga. Við stöndum með Austfirðingum og við viljum efla svæðið. Það er verið að flýta ýmsum framkvæmdum eins og veginum um Öxi og fleirum þarna á svæðinu. En já, ef hv. þingmaður er að spyrja mig hvort ég ætli að bera ábyrgð á forgangsröðun þá geri ég það því að það er það sem fólk vill að við gerum. Það vill að við stöndum við það og það er það sem forsendur í þessari áætlun ganga út frá. Fjármögnun í formi innviðafélags er einmitt til þess að auka traust á stjórnmálum (Forseti hringir.) svo fólk leggi ekki fram ófjármagnaða samgönguáætlun í áraraðir án þess að þora að taka ákvörðun. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)