157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[20:11]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni að auðvitað eiga menn að játa mistök sín. Ég er alveg viss um að Framsóknarflokkurinn hlýtur í dag að játa þau mistök að hafa veitt minnihlutastjórn Jóhönnu Sigurðardóttur vernd hér á fyrstu dögum minnihlutastjórnarinnar; ég er viss um að Framsóknarflokkurinn í dag myndi ábyggilega gangast við því að það voru mistök. Það er bara þannig að afleiðingarnar af þeim skatti eru komnar í ljós. Þær eru ekki góðar og þá eigum við að draga þær til baka. Hvað varðar tillögurnar talar hæstv. forsætisráðherra um að það eigi að ná 100 milljörðum á kjörtímabilinu. Þegar fyrsta árið er liðið eru bara þrjú ár eftir þannig að það eru þá um 33 milljarðar sem á að skera niður í fjárlögum á hverju ári. Auðvitað koma inn tillögur og allar hagræðingartillögur eru pólitískar. Það er t.d. pólitísk tillaga að hagræða í rekstri RÚV, leggja RÚV niður, leggja niður eitthvað af þessum nefndum og alls konar sem við erum með, eða draga saman í einhverjum styrkjum eða sjóðum eða öðru eða bara leggja þá niður; auðvitað eru þetta pólitískar tillögur og það er bara vandamálið. Það er líka pólitískt vandamál að hér er vinstri stjórn sem er bara ekki með það í eðli sínu að hagræða í rekstri ríkisins. Þess vegna skildi ég aldrei þessa vegferð. Það er kannski bara af því að ráðaleysið var algjört: Að kaupa sér tíma með því að senda spurningalista á þjóðina, fá 10.000 tillögur og ætla ekki að gera neitt af þeim að veruleika. Þá veltir maður fyrir sér: Af hverju var þá farið af stað?