157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[20:15]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er nú bara þannig að fálkinn flýgur frjáls og það leiðir hann enginn. Það verður kannski ekki sagt um Miðflokkinn, sem hefur hestinn í sínu merki, að þeir geti verið leiðitamir og góðir í taumi. Hvað varðar ferðaþjónustuna, svo við förum nú að alvarlegri málum og hættum að slá á létta strengi, sem verður líka að vera: Hvað erum við að tala um núna í innviðagjaldinu? Jú, við erum að tala um það að ef við lækkum innviðagjaldið er það ekki fyrir næsta ár, það er ekki fyrir þar næsta ár. Þetta snýst um að snúa við þróuninni til að bjarga árinu 2028. Það er fyrirsjáanleikinn. Við þurfum að bjarga vertíðinni 2028. Það er bara þannig. Hvort það myndi duga að fara með þetta niður í 800 kr., 1.000 kr. eða fella þetta alveg niður — það verður að eiga það samtal við hagaðila. Svo er það, eins og ferðaþjónustan hefur margoft bent á og eins og er að koma fram núna: Vörugjöld á ökutæki, kílómetragjald. Þetta er ákveðið hér í desember og á svo að leggjast á 1. janúar. Hvernig eiga bílaleigurnar að bregðast við, sem eru að taka við kílómetragjaldinu núna og eru búnar að selja meira og minna allt næsta sumar? Það á algerlega eftir að útfæra það hvernig á að innheimta þetta. Það er allt óútfært við þetta gjald. Þetta er ein versta mynd af því að innheimta nokkur gjöld. Þetta kílómetragjald er algjör della og á að komast á núna eftir áramót og á ekki bara að leggjast á almenning heldur líka á fyrirtækin í landinu; það verður hækkun á vöruflutningskostnaði fyrir íbúa þessa lands sem þýðir þá að allar aðfluttar vörur, matur og annað, hækkar í verði. Verðbólgan hækkar og bílaleigurnar sitja uppi með sárt ennið. (Forseti hringir.) Þetta er nú fyrirsjáanleikinn sem við höfum frá hæstv. ríkisstjórn.