157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[23:20]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Við ræðum hér fjárlög í 2. umræðu, fjárlög fyrir árið 2026, og hefur umræðan nú staðið í þrjá daga og verið um margt áhugaverð. Ég verð samt að segja, frú forseti, að ég sakna aðeins stjórnarliða úr þessari umræðu. Að mínu mati hafa þeir verið of fáir og hefðu kannski að ósekju mátt vera duglegri að mæta í þingsal til að hlýða á varnaðarorð stjórnarandstöðunnar og þær úrbætur sem boðnar eru.

Frú forseti. Ríkisstjórnin er að leggja fram sín fyrstu fjárlög og það verður að segjast eins og er að staðan er ekki eins og var lofað þegar þessi ríkisstjórn tók við, ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins. Hún hefur nú starfað í tæpt ár og þetta eru hennar fyrstu fjárlög og eiga þá að bera með sér skýra stefnu hennar og, frú forseti, ég ætla leyfa mér að segja að við verðum að segja hlutina eins og þeir eru. Fyrir kosningar heyrðum við stór orð. Forsætisráðherra talaði um að negla niður vexti með sleggju og því var lofað að engar skattahækkanir yrðu lagðar á almenning. Það var talað um að endurreisa traust og koma á nýrri og ábyrgri hagstjórn. En hvað blasir síðan við þegar við förum að skoða fjárlagafrumvarpið nánar? Jú, þar sjáum við stóraukinn ríkisrekstur. Við sjáum auknar álögur, meiri hallarekstur og stefnu sem grefur undan því sem sagt er að henni sé ætlað að ná fram, þ.e. lækkun verðbólgu og lægri vöxtum. Það hefur því miður ekki gengið eftir og verðbólgan hefur reynst þrálát og viðvarandi og má eiginlega segja að vaxtalækkunarferlið sem var hafið í tíð síðustu ríkisstjórnar hafi stöðvast í maí á þessu ári og fyrir utan auðvitað þessa litlu lækkun sem varð í nóvember þá er það ekki vegna þess að hagstjórnin hafi sýnt þess merki að hér myndu aðstæður skapast til lækkunar verðbólgu og vaxta. Þessi lækkun sem varð í nóvember var vegna dóms Hæstaréttar um verðtryggð lán. Það var nú ástæðan fyrir þessari lækkun, þ.e. minnkandi möguleikar á að taka lán og jafnvel ómögulegt um tíma.

Ríkisstjórnin talar hér um stöðugleikafjárlög en þetta frumvarp er nú kannski ekki að lýsa neinum sérstökum stöðugleika því að það verður að segjast eins og er að aðhald í þessu frumvarpi er lítið. Þá má nefna að það felur einnig í sér gríðarlegan útgjaldavöxt og verulega aukna skattheimtu sem allir Íslendingar munu finna fyrir með einhverjum hætti. Því hefur ríkisstjórnin í reynd svikið loforð sem gefið var við upphaf stjórnarmyndunar um að það yrðu engar skattahækkanir á almenning og engar skattahækkanir á venjulegt fólk. Það er alla vega ekki að raungerast í þessu frumvarpi.

Ríkisstjórnin tók sannarlega við góðu búi, frú forseti, og kemur sú staðreynd ágætlega fram í nefndaráliti 3. minni hluta. Það virðist stundum hafa gleymst hreinlega í pólitískri umræðu að ríkisstjórnin tók við góðu búi. Síðustu ár voru vissulega ár áfalla og óvissu. Á Íslandi var heimsfaraldur Covid eins og annars staðar, hér komu upp jarðhræringar á Reykjanesskaga og hér var fall stórra fyrirtækja í ferðaþjónustu. Þetta eru allt áföll sem höfðu í för með sér áföll fyrir efnahagslíf okkar. Þrátt fyrir þetta tókst að standa vörð um sterkt efnahagslíf og það var ákveðin fyrirhyggja í því hjá þáverandi ríkisstjórn að bregðast hratt og örugglega við þannig að eftir Covid yrðu atvinnugreinar eins og t.d. ferðaþjónusta þá til þess bærar að hefja störf með kröftugum hætti og sækja hratt fram þannig að hægt væri að vinna til baka það sem tapast hefði. En þetta kostaði allt fjármuni og beinn kostnaður ríkissjóðs vegna faraldursins var metinn á tæpa 200 milljarða kr. og þegar lagður er saman allur kostnaður vegna efnahagsáfalla og náttúruvár þá má gera ráð fyrir að hann hafi verið vel á fjórða hundrað milljarða kr. á árunum 2019–2024.

Frú forseti. Þetta eru stórar tölur en eins og ég nefndi áðan tókst að takast á við þetta án þess að landinu yrði sökkt í varanlegt skuldafen eða að hér yrði viðvarandi hallarekstur. Það má kannski segja að meira að segja á þessum tíma hafi verið uppi jafnvel sviðsmyndir sem gerðu ráð fyrir því að Covid yrði mun dýrara heldur en raunin varð síðan, að þetta gæti kostað jafnvel þúsundir milljarða. En sem betur fer kom ekki til þess og það verður að segjast eins og er að skuldahlutfall af landsframleiðslu var ekki 60% heldur hækkaði aðeins og hagvöxtur á árunum 2015–2024 var að meðaltali 3,1% á ári og hagvöxtur á mann um 1,2%. Þetta eru tölur sem lýsa öflugri endurreisn eftir stór áföll og er það vel. Þessu er of sjaldan haldið til haga og ég vil sérstaklega nefna að ríkisstjórnin hefur oft minnst á að á þessum tíma hafi ríkissjóður verið rekinn með halla en hefur einhverra hluta vegna aldrei minnst á þær áskoranir sem fylgdu þessum tíma. Því hefur það verið sett í ósanngjarnt pólitískt ljós og í rauninni bara villuljós, svo maður segi það nú bara. Þarna náðist einnig árangur í málum sem skipta samfélagið miklu. Það tókst að ná ágætri stjórn á hælisleitendamálum og kyrrstaða var rofin í orkumálum. Nýsköpunarumhverfið var stokkað upp og skýr stefna sett um að ríkið gæti losað um ríkiseignir sem ekki vörðuðu þjóðaröryggi eða menningararf.

Þetta er bakgrunnurinn sem núverandi ríkisstjórn tók við og verður að horfa á núverandi fjárlög í ljósi þess, og þá hlýtur sú spurning að vakna: Af hverju er ríkisstjórnin á þeirri vegferð að reka hér íslenskt atvinnulíf og íslenskt efnahagslíf með halla og bæta í útgjöld og hækka skatta þegar augljóslega er svigrúm til að gera þetta með öðrum hætti? Kannski má þar líka nefna að mér hefur stundum fundist dálítið vanta upp á væntingastjórnun hjá núverandi ríkisstjórn. Menn hafa kannski farið offari í því að lofa of miklu í staðinn fyrir að vera með eðlilega væntingastjórnun og taka þetta örlítið hægar. Það hefði t.d. verið tækifæri til að reka ríkið hallalaust árið 2026 ef vilji hefði verið fyrir hendi. Ríkisstjórnin velur engu að síður halla þrátt fyrir að geta skilað hallalausum fjárlögum.

Það er kannski rétt að nefna að afkoma ríkissjóðs á þessu ári er mun betri en fjárlög gerðu ráð fyrir. Í haust var gert ráð fyrir því að hallarekstur yrði 19 milljarðar kr. en í áætlunum var gert ráð fyrir 63 milljarða kr. halla árið 2025 og verður það að teljast ánægjulegt. En þá veltir maður líka upp þeirri spurningu: Hefði ekki núverandi ríkisstjórn getað sýnt örlítið meiri metnað og ákveðið að skila hallalausum fjárlögum sem augljóslega hefðu sent sterk skilaboð um að hér yrðu ríkisfjármál rekin af festu og öryggi? Án efa hefði það hjálpað til við verðbólguvæntingar og mögulega lækkun á verðbólgu og vaxtalækkanir. Hvað gerir hins vegar ríkisstjórnin? Hún bætir við útgjöldum og hækkar skatta. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að það verði um 25 milljarða kr. halli á ríkissjóði ef tekjuforsendur standast en það eru engin raunveruleg áform um að greiða niður t.d. skuldir. Í stað þess virðist stjórnin reiða sig á að sveitarfélög komi til með að lækka skuldahlutfallið og það muni einnig lækka af sjálfu sér vegna aukins hagvaxtar.

Frú forseti. Ég tel þetta ekki ábyrgt, ekki það að hallinn sé hlutfallslega mikill heldur vegna þess að þetta er meðvituð ákvörðun og hún er tekin í þeim aðstæðum að það hefði verið hægt að gera betur og senda skýrari skilaboð eins og ég nefndi hér áðan. Ef við skoðum útgjaldavöxtinn er ljóst að útgjöld ríkisins munu aukast um 143 milljarða kr. frá fjárlögum síðasta árs. Til samanburðar má nefna að útgjaldavöxtur 2024–2025 var um 76 milljarðar og það var á kosningaári. Ef ekki er ráðist í þetta núna, hvenær ætlar ríkisstjórnin þá að fara í þessar aðgerðir? Og ef ríkisstjórnin er í þeirri stöðu að geta ekki sýnt aðhald þegar afkoman er betri en spáð var, hvenær á ríkisstjórnin þá að gera það? Það er auðvitað kjarni málsins.

Frú forseti. Ríkisstjórnin hefur innleitt hér stöðugleikareglu og má nefna að það er í rauninni stöðugleikaregla sem á að hjálpa til með það að ríkið gæti hófs í því að eyða peningum umfram efni og hefur verið fróðlegt að sjá hvernig þessari stöðugleikareglu hefur verið beitt. Ég vil nefna, frú forseti, að Samtök atvinnulífsins hafa bent á að fjárlög breytist jafnt í meðförum þings og að þrýstingur verði á útgjaldaliðina í 2. umræðu en það er í sjálfu sér ekkert nýtt. Það sem er nýtt er að ríkisstjórnin hefur fullnýtt alla ramma stöðugleikareglunnar strax í frumvarpi sínu og það er ljóst að ríkisstjórnin virðist líta á regluna — sem er hugsuð í rauninni sem hámark, sem öryggisbelti, og á að tryggja að útgjöld vaxi ekki umfram það sem efnahagslífið þolir án þess að skapa verðbólgu og vaxtaþrýsting — sem gólf, eitthvað sem alltaf skuli nýta til fulls. Þetta er einmitt sú hætta sem m.a. fjármálaráð varaði við í sínum umsögnum.

Vandanum er ekki lokið þar. Það má segja að stöðugleikareglan sé of veik og hún leyfi útgjaldaaukningu ef skattar eru hækkaðir á móti. Það má segja að hún undanskilji of marga útgjaldaliði þannig að hún tekur ekki tillit til ákveðins hluta af útgjöldum. Má þar nefna að stórir liðir eins og varnarmál eru algerlega fyrir utan þennan ramma. Það er líka alvarlegt að mat á stöðugleikareglunni lá ekki fyrir þegar breytingartillögur meiri hlutans komu fram í 2. umræðu og óljóst er hvort þær rúmast innan þess 1,5 milljarða svigrúms sem talið var að væri til staðar og ég hef alla vega ekki séð nýlegar uppfærslur á því hvort það sé skoðað að stöðugleikareglan sé hreinlega fallin miðað við útgjöld ríkissjóðs.

Ríkisstjórnin hefur talað um að hagræða og ég ætla að hrósa ríkisstjórninni fyrir að hafa skorað á almenning að skila inn hagræðingartillögum. Þjóðin brást hratt og örugglega við því og sendi inn fjöldann allan af hagræðingartillögum en því miður er ekki að sjá að mikið hafi verið nýtt af þessum hagræðingaraðgerðum og hafa svo sem ekki komið neinar haldbærar skýringar á því aðrar en að kjörtímabilið sé fjögur ár og að það sé enn tækifæri til að vinna úr þessum hagræðingartillögum. Þeim hefur alla vega ekki verið beitt til að draga úr útgjöldum ríkisins í þessu frumvarpi. Boðuð hagræðing fyrir árið 2026 nemur aðeins um 0,9% af útgjöldum ríkisins og hluti þess er í raun ekki raunveruleg hagræðing heldur aðeins frestun og tilfærslur og tæming varasjóða sem ég vil vara sterklega við að sé gert. Samtök atvinnulífsins hafa jafnframt bent á að aðhald í fjárlögum fyrir árið 2026 sé minna en í fjárlögum fyrir árið 2025 á alla mælikvarða. Því má eiginlega segja að aðhald þessa frumvarps sé í rauninni lítið og sú hagræðing sem hefur verið boðuð er í rauninni margfalt minni en ný útgjöld sem hún leggur sjálf til að verði farið í.

Frú forseti. Þetta er ekki ábyrg stjórnsýsla. Þetta er eins og orð án innihalds. Meiri hlutinn stefnir á halla sem nemur um 0,5% af landsframleiðslu eða um 27,5 milljörðum kr. Hlutfallið er kannski ekki hátt en það sem skiptir miklu er að það er verið að sýna ákveðin teikn og þetta mun hafa áhrif á raunafkomu ríkissjóðs. Hún verður neikvæð um 82 milljarða kr. árið 2026 og þó að við tökum út stórar einskiptisgreiðslur er þetta mun lakara en var fyrir árið 2025 og enn lakara en 2024 þrátt fyrir jarðhræringar og ýmsan kostnað sem ríkið bar á þeim tíma. Þetta segir okkur einfaldlega að undir yfirborðinu er ríkisreksturinn á rangri leið. Við erum ekki á vegferð sem miðar að sjálfbærum ríkisfjármálum heldur aftur í þá átt að vera með varanlegan halla. Það er ekki að sjá að núverandi ríkisstjórn ætli að draga eitthvað af sér í frekari skattheimtu þannig að það er augljóst hvernig ríkisstjórnin ætlar að brúa halla.

Varðandi skattahækkanirnar þá er, frú forseti, rétt að nefna að þetta er líklega sá þáttur fjárlaga sem landsmenn munu finna mest fyrir. Í ljósi fyrri yfirlýsinga um að hækka ekki skatta á venjulegt fólk þá er ótrúlegt að lesa upp alla þá skatta sem hafa verið hækkaðir, skattahækkanirnar nema tæpum 28 milljörðum kr. fyrir árið 2026. Má þar nefna hærri skatta á ökutæki og eldsneyti, afnám samsköttunar hjóna, kílómetragjald á öll ökutæki og krónutölugjöld voru hækkuð um 3,7%, langt umfram verðbólgumarkmið. Auk þess er boðaður streymisskattur, náttúru- og innviðagjöld á ferðamannastaði og veruleg hækkun erfðafjárskatts og þar er nú nánast hægt að segja að það sé um ákveðna ósvífni að ræða því að slík er hækkunin þar sem á að fara í matsvirði eigna en ekki nýta hefðbundið fasteignamat. Þar er líka tíminn sem Skatturinn hefur til að breyta álögum sínum verulega rúmur svo nemur mörgum árum. Það hlýtur að teljast fullkomlega óeðlilegt í ljósi þess að það geta komið upp alls konar vandamál því tengd. En það er mikilvægt að tala skýrt. Þetta eru skattahækkanir á almenning, þetta eru skattahækkanir á fjölskyldur, á námsmenn, á fólk með húsnæðislán, á eldri borgara og líka á fyrirtæki sem skapa störf.

Kílómetragjaldið er svo sérstaklega alvarlegt. Ísland verður fyrsta landið sem innleiðir slíkt gjald á öll ökutæki með þessum hætti. Það er gert með litlum fyrirvara og sérstaklega skaðar þetta ferðaþjónustuna. Þá er líka athyglisvert að benda á að þetta hefur hvergi verið prófað í heiminum og við höfum þá í sjálfu sér enga reynslu til að byggja á. Ég vil meina að það væri skynsamlegt hjá ríkisstjórninni að taka sig til og fresta þessu ákvæði og horfa fremur til þess að nýta það kerfi sem við höfum haft um langa hríð. Bílaleigubílar munu hækka um tugi prósenta á ákveðnum bíltegundum og ferðaþjónustan, sem er ein mikilvægasta útflutningsgrein okkar, mun ekki þola ófyrirsjáanlegar og hraðar álögur sem hækka kostnað í einu vetfangi. Enda er það svo, frú forseti, ef við horfum bara til þess hvort markmiðin um að ná inn auknum tekjum vegna t.d. hækkunar á vörugjaldi munu nást að það er algerlega augljóst að þau munu ekki ganga eftir á árinu 2026, því að eins og hefur komið fram í umræðunni þá hefur að sjálfsögðu landinn brugðist við því ef ríkið er að leggja á skatta og það er einhver fyrirvari á að kaupa sér t.d. bíl áður en ný gjöld leggjast á. Þá bregst Íslendingurinn við af krafti og staðreyndin er sú að innflutningur á bílum síðustu mánuði ársins hefur numið hundruðum prósenta.

Þá er einnig rétt að nefna að húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar felur í sér skattahækkun á leigutekjur um 2,3 milljarða og það er bein uppskrift að hækkun á leiguverði. Auðvitað þurfa þá leigutakar að bera þetta í hækkun leigu þannig að þegar stjórnin lýsir því yfir að hún sé að verja heimilin þá má auðvitað spyrja: Hvernig verndar maður heimili með því að hækka orkuverð, verð á bifreiðum og á húsaleigu og neyslusköttum samtímis? Það er augljóst að það mun ekki ganga eftir.

Vörugjöld á bifreiðar og orkuskipti verða næsta umræðuefni mitt og, frú forseti, áætlað er að hækkunin á bifreiðarnar sé um 7,5 milljarðar kr. Eins og ég nefndi áðan er ljóst að þessar tekjuforsendur munu ekki nást á næsta ári. Ríkisstjórnin hefur ekki ákveðið að endurskoða afstöðu sína til þess þannig að þetta verða þá væntanlega vonbrigði fyrir hæstv. fjármálaráðherra þegar þetta skilar sér ekki í kassann. Varðandi orkuskiptamarkmiðið þá er rétt að nefna að bílaleigur hafa verið að kaupa mun fleiri bensín- og dísilbíla heldur en rafmagnsbíla og það að ætla að fá bílaleigurnar til að skipta yfir í fyrst og fremst rafmagnsbíla felur í sér að hér þarf að verða töluverð kynning á því fyrir ferðamanninn að það geti verið hagstæðara fyrir hann að ferðast um á rafmagnsbílum því að fæstir hafa reynslu af þeim bílum og margir eru hræddir við að nota bíla sem þeir þekkja lítið til og augljóslega verður breyting varðandi t.d. eldsneyti, að þurfa að setja bílinn í samband o.s.frv. Þetta er í raun klassískt dæmi sem hljómar ágætlega á teikningum en virkar illa í raunheimum.

Kannski ég víki aðeins, frú forseti, að varnarmálum. Þar eru stór orð en þar er engin útfærsla. Ríkisstjórnin boðar að framlög til varnarmála verði hækkuð upp í 1,5% af landsframleiðslu sem jafngildir um 77 milljörðum kr. á ári. Í ár voru þessi framlög um 7 milljarðar og þetta er því tíföldun á tiltölulega fáum árum ef á að halda áfram á þessari braut. Ekki verður séð að gert sé ráð fyrir þessu í t.d. fjármálaáætlun og verður athyglisvert að sjá hvernig þetta á að útfærast. Það er alla vega ljóst að það liggur engin áætlun fyrir um hvað geti talist varnartengd verkefni. Það kemur heldur ekkert fram um hvernig eigi að ná þessu markmiði og ekki hvaða áhrif þetta viðmið muni hafa á stöðugleikaregluna og síðan á aðhald eins og ég vék að hér áðan. Ríkisstjórnin leggur ekki fram nein skýr svör en samt eru varnarmál jafnframt undanþegin stöðugleikareglunni og þannig veikist fjárlagaumgjörðin enn frekar en efni standa til.

Milli 1. og 2. umræðu, frú forseti, kom fram ný þjóðhagsspá, 14. nóvember, og er hagvöxtur nú talinn lægri 2025 og 2026 og verðbólgan meiri, útflutningsverðmæti munu ekki aukast eins og áður var spáð og við höfum horft upp á ný áföll; gjaldþrot Play, stöðvun PCC á Bakka og nýlega bilun hjá Norðuráli og síðan auðvitað minnkandi afla í sjávarútvegi eins og flestum er kunnugt um. Ríkisstjórnin gerir engu að síður ráð fyrir auknum skatttekjum af flestum tegundum og hún reiknar sérstaklega með auknum tekjuskatti lögaðila þrátt fyrir verri horfur í atvinnulífinu og augljósan samdrátt á mörgum sviðum.

Frú forseti. Þetta er ekki trúverðugt og það sem verra er, á milli umræðna bætir ríkisstjórnin við útgjöldum þannig að hún eykur enn hallann og hækkar skatta enn frekar, m.a. eins og ég nefndi áðan á leigutekjur og erfðafjárskatt. Þetta er í rauninni stefna sem fer í kolranga átt þegar forsendur versna. Það er ekki varfærni í því, það er áhættusækni.

Frú forseti. Ég verð að nefna stöðuna varðandi erfðafjárskattinn. Þar er um að ræða ógagnsæja hækkun sem bitnar á fjölskyldum og bændum og er einstaklega óheppileg breyting sem varð á milli umræðna. Tekjur af erfðafjárskatti eiga að aukast um 2,1 milljarð kr. Það er gert með breyttu mati á landi og jörðum og nú á að miða við markaðsvirði í stað fasteignamats. En hvað þýðir þetta í reynd? Þetta þýðir að eftirlifandi makar, börn og fjölskyldur sem erfa jarðir og bú geta skyndilega staðið frammi fyrir mikilli skattbyrði. Matið er augljóslega flókið og ógagnsætt og hér hafa meira að segja verið nefnd dæmi um sauðfjárbú sem hafa verið að skipta um hendur og þá sjá menn auðvitað að ef jarðir eru metnar langt umfram það sem t.d. búreksturinn skilar þá geti auðvitað ábúendur lent í stórkostlegum vandræðum með að ná að brúa t.d. kynslóðabil þar sem eignir skipta um hendur. Þeir sem t.d. erfa slíka jörð þurfa þá kannski að byrja á því að taka lán til að greiða arfinn. Það er auðvitað mjög sérstakt og ég trúi hreinlega ekki að meiri hluti Alþingis ætli að hleypa þessu máli óbreyttu í gegn. Ég mun eiga bágt með að trúa því. Þetta er ekki bara skattahækkun, frú forseti, þetta er stefna sem getur haft djúp áhrif á byggð, búsetu og svo landnýtingu. Miðað við þær umsagnir sem hafa borist er ekki hægt að segja að þetta mál hafi verið kynnt með fullnægjandi hætti, hvorki fyrir fjárlaganefnd né almenningi.

Mig langar að víkja hér að tillögum Sjálfstæðisflokksins um leið að hallalausum fjárlögum. Það er ekki nóg að segja bara nei, það þarf auðvitað að skila tillögum og lausnum og má segja að leið Sjálfstæðisflokksins sé einföld í grunninn: Það er að hagræða, það er að forgangsraða, nýta eignir ríkisins skynsamlega og hætta við skattahækkanir þannig að við styðjum við stöðugleika og vexti. Það má kannski byrja á að nefna almenna hagræðingu upp á 23,6 milljarða þar sem lögð er til 3,5% hagræðingarkrafa á stofnanir með innleiðingu greiningartólsins Ráðhildar og þá er hægt að mæla afköst og nýtingu fjármuna í rauntíma. Einnig er lagt til 7,5% aðhald á aðalskrifstofum ráðuneyta og 25% aðhald í utanríkisþjónustunni og að ráðstöfunarfé ráðherra verði lagt af. Við viljum líka samræma lög um opinbera starfsmenn almennum vinnumarkaði til að auka sveigjanleika og framleiðni og bæta lausafjárstýringu til að lækka vaxtagjöld ríkissjóðs. Einnig viljum við sameina og leggja niður stofnanir og gerum ráð fyrir 6,1 milljarði í afgang hvað það varðar. Þar er m.a. lagt til að Neytendastofa verði lögð niður og margar frekari útfærslur sem ég, tíma míns vegna, get kannski ekki farið mjög djúpt í. Einnig er mikilvægt að draga úr verkefnum sem teljast ekki til grunnþjónustu. Þar gerum við ráð fyrir að megi spara 15,5 milljarða. Þar er bent á fjölda verkefna og styrkjaflokka sem ekki teljast til kjarnaþjónustu ríkisins. Við leggjum til að þeim verði fækkað eða þau hreinlega lögð af.

Sala ríkiseigna til skuldalækkunar og vaxtasparnaðar. Ríkið á nú um 530.000 m² eignasafn og við teljum að selja megi töluverðan hluta af því eða yfir 100.000 m² sem ekki eru þá menningar- eða öryggislega nauðsynlegir. Vænt söluvirði þar er í kringum 53 milljarðar kr. Heildartillögur okkar um sölu ríkiseigna nema því yfir 420 milljörðum og gætu skilað allt að 30 milljörðum á ári í vaxtasparnað. Raunhæft er að helmingur þess gæti komið fram strax á árinu 2026 og má eiginlega segja að við viljum nota eignir til að lækka skuldir, ekki til að hækka skatta. Þá er mikilvægt að stöðva skattahækkanir og hefja skattalækkanir og erum við að gera ráð fyrir nærri 32 milljarða lækkun með því að krónutölugjöld hækki ekki á milli ára, að hætt verði við vörugjaldahækkun á ökutæki og kílómetragjaldið verði ekki tekið upp á bensín- og dísilbíla, samsköttun hjóna verði áfram við lýði og persónuafslátturinn nýtanlegur til fjármagnstekjuskatts, að skattur á leigutekjur verði heldur ekki hækkaður og festa séreignarsparnaðarleiðina í sessi, hækka mörk og lengja nýtingartíma. Í úrræðum sem birtust t.d. í húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar og Reykjavíkurborgar var verið að tala um að festa séreignarsparnaðarleiðina í sessi til 10 ára en eins og staðan er í dag eru margir þá búnir að nýta þau 10 ár. Því væri eðlilegt að framlengja frekar séreignarsparnaðarleiðina um 3–5 ár og endurtaka það. Þá er einnig lagt til afnám stimpilgjalds af fyrstu íbúðarkaupum og að veðmálastarfsemi verði gefin frjáls og skattlögð með tekjum í forvarnir og meðferð. Markmiðið er skýrt, að létta byrðum af heimilum og fyrirtækjum, skapa svigrúm fyrir lægri vexti og styðja við raunverulegan hagvöxt.

Frú forseti. Í lok ræðu minnar vil ég nefna að það var sannarlega kjörið tækifæri til að leggja fram hallalaus fjárlög fyrir árið 2026 og eru vonbrigði að ríkisstjórnin skyldi hafa valið aðra leið, en hún valdi leið halla og skattpíningar. Við Sjálfstæðismenn teljum líklegt að sú vegferð muni valda þrálátari verðbólgu en ella, muni seinka vaxtalækkunum og þrengja að heimilunum með vaxandi kostnaði, draga úr samkeppnishæfni atvinnulífsins og skapa óvissu um framtíðarrekstur ríkisins. Teljum við nær að fylgja þeirri leið sem við höfum hér bent á með því að hagræða í ríkisrekstri og selja óþarfaeignir, svo dæmi sé tekið.

Í lok þessarar umræðu langar mig að nefna það og hvetja meiri hlutann hér á Alþingi til þess að breyta þessum fyrirhuguðu skattaáformum, vil ég þar sérstaklega nefna skatt á arfgreiðslur og líka að endurskoða þá hugmynd sína að setja kílómetragjaldið á, svo dæmi sé nefnt, það er réttlætismál t.d. gagnvart samsköttun hjóna og einnig að breyta aftur auknum álögum á leigutekjur hjá aðilum sem eru að leigja út eigið húsnæði. Þetta eru allt saman leiðir og atriði sem munu, ég ætla að leyfa mér að segja, gefa í raun ríkinu auknar skatttekjur þegar horft er til umsvifa og nýtingar á því svigrúmi sem þetta skapar fyrir einstaklinga og vil bara skora á stjórnarliða að víkja af þessari villu síns vegar og vona að þau noti tækifærið núna í 3. umræðu.