fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Hvernig á að fjármagna vegakerfið? Það vilja nú flestir gera. En með hvaða hætti? Er það best gert með almennum sköttum eða með gjöldum af þeim sem nota vegakerfið? Frá 2021 hefur það verið stefnan í fjármálaáætlun og fjármálastefnu að um 1,7% af vergri landsframleiðslu verði innheimt sem bein notendagjöld af þeim sem nota vegakerfið. Þessi tillaga um vörugjöld er leið í viðleitni til að ná því markmiði. Hér hefur margt verið sagt um að þessi breyting muni hafa mjög mikil áhrif á hegðun fólks. Ég mun fara aðeins betur í það þegar við tökum fyrri umræðu um bandorminn. En ég vil hins vegar benda á að frá því að þessar hugmyndir komu fram þá hafa hér á landi selst og verið nýskráðir 1.822 rafmagnsbílar en 314 bensínbílar og 365 dísilbílar. Það er því enn þá þannig að mikill meirihluti þeirra bíla sem keyptir eru af almenningi eru hreinorkubílar. Ef þessi kauphegðun er að breytast hefur sú kaupbreyting ekki enn þá komið fram.