157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:51]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf):

Frú forseti. Í vinnu fjárlaganefndar ræddum við með hvaða hætti væri hægt að styðja við bæði meðferðarúrræðin og sömuleiðis endurhæfinguna og var það mat nefndarinnar eftir álit og umsögn ráðuneytisins að setja þetta sameiginlega í flokk, annars vegar 700 millj. kr. í endurhæfingu og hins vegar um 350 millj. kr. til meðferðarúrræða. Það er ánægjulegt að geta sagt frá því, þó að þessu sé ekki skipt sérstaklega niður, að þessar fjárhæðir ættu og eiga að dekka og tryggja rekstrargrundvöll án skerðingar þjónustu þessara mikilvægu málaflokka sem eru undir, eins og Ljósið, Náttúrulækningafélagið, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, Alzheimersamtökin, Parkinson-samtökin, Reykjalundur, og svo Krýsuvíkursamtökin, Hlaðgerðarkot og SÁÁ. Ég mun stoltur og virkilega ánægður segja já og greiða þessu máli atkvæði mitt.