157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:58]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Þetta er mikilvægt mál. Hér eru lagðar til 700 millj. kr. í endurhæfingarþjónustu. Ég vildi rétt koma inn á Ljósið ef ég fengi þögn í salnum. Ljósið fékk 195 milljónir aukalega frá fjárlaganefnd í fyrra. Sá sem hér stendur, sem var þá formaður fjárlaganefndar, lagði mikla áherslu á að þetta mál myndi fara í gegn upp á að það yrði haldið áfram með að koma þessu inn í ramma. Eins og við vitum öll sem hér erum er gríðarlega mikilvægt að koma þessari starfsemi í ramma. Forseti …

(Forseti (BHar): Forseti biður þingmenn um að gefa hljóð í salnum.)

Ég vænti þess, nú þegar búið er að taka á þessu máli, að Ljósið fái þessar rúmlega 200 milljónir miðað við vísitölu núna. Það er gríðarlega mikilvægt að koma starfsemi Ljóssins í betra form heldur en hefur verið á undanförnum misserum. Fjárlaganefnd bætti við fyrir tveimur árum 40 milljónum, í 195 millj. kr. í fyrra, og ég vona svo sannarlega að við þurfum ekki að taka þessa umræðu aftur að ári.

Eitt að lokum, forseti. Það er það (Forseti hringir.) að peningarnir komi nægilega snemma frá Sjúkratryggingum Íslands, að það sé ekki verið að bíða fram á haustið eftir þeim. Það er svolítið ríkjandi (Forseti hringir.) að fjármagnið kemur seint fram og skapar mikil vandræði í rekstri þessarar starfsemi.