fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Varasjóður kom inn í ríkisfjármálin þegar lög um opinber fjármál voru samþykkt fyrir um 15 árum síðan. Hugsunin var einfaldlega sú að menn vildu alltaf gera ráð fyrir því að eitthvað gæti komið upp. Það þarf ekki að eyða varasjóði. Þú vilt hafa hann til staðar ef það er óvissa, sem oft er. Bara til að setja þetta í eitthvert samhengi þá talar ríkisstjórnin um, þegar hún telur upp hagræðingaraðgerðir sínar, að hafa tekið varasjóðina af ráðuneytunum. Það var á málefnasviðunum líka. Það er hagræðingin, að taka af varasjóðina. Hversu aumt getur það verið? Í þessari óvissu núna og þegar fjármálaáætlun var lögð fram var mjög góður kafli frá hæstv. fjármálaráðherra um óvissuna. Það skiptir máli að hafa borð fyrir báru og fara varlega. Hvað er svo gert? Varasjóðirnir eru teknir af (Forseti hringir.) og farið algjörlega niður í lágmarkið. Þetta eru verk ríkisstjórnarinnar.