fjáraukalög IV 2025.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið en ég vil ítreka varðandi afkomu þessa árs af því mér fannst það ekki vera alveg nægilega skýrt: Við vorum að vinna með tölur um að hallinn væri ekki 63 milljarðar eins og gert var ráð fyrir í frumvarpinu heldur væri gert ráð fyrir 19 milljarða halla. Síðan fáum við að vita það í hv. fjárlaganefnd að það gæti komið 7 milljarða bakslag í tekjum eða minni tekjur en við fengum ekki upplýsingar frá fulltrúum ráðuneytisins hvað það væri, það væri áhugavert að vita. Mér fannst hæstv. ráðherra segja að það sneri að því að það væru einhverjar minni skatttekjur heldur en gert var ráð fyrir. Ég geri ráð fyrir því að það sé vegna þess að hagvöxtur var minni en ætlað var en þá er spurning hvort það hafi áhrif á fjárlagagerð næsta árs því það er líka gert ráð fyrir minni hagvexti þar. En ef hæstv. ráðherra myndi sundurgreina þessa 38 milljarða sem er áætlaður halli, og þá er ég að vísa til þess hvað er mikið af einskiptiskostnaði og við þurfum að fara dýpra í það þegar kemur að lífeyrisskuldbindingunum og verðbótunum. Mér sýnist varðandi vörugjöldin að við séum ekki búin að gera ráð fyrir breytingum þar. Ég vona að ég sé skýr, það er erfitt að tala í ræðupúlti um svona tölur, sérstaklega þegar við erum ekki með þær fyrir framan okkur, en ég er að reyna að átta mig á þessum 38 milljörðum, hvernig skiptingin er, hvað er einskiptiskostnaður og hvaða breyting hefur orðið frá 19 milljörðunum síðan í september.