157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[11:03]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Árnason) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir sína framsögu og fyrir góða vinnu í hv. efnahags- og viðskiptanefnd. Ég tek undir það með honum að nefndin vann þetta mál bara vel og er búin að fara yfir þetta. Þetta er í fjórða sinn sem þetta er til umræðu hér í þinginu. Ég vildi því kannski aðallega koma hér upp til að spyrja hv. þingmann, sem hefur fylgt málinu eftir síðustu tvö skipti, hvert hið raunverulega mikilvægi sé í þessu máli. Nú höfum við tekið á móti fjölda gesta og fjölda umsagna. Ef ég man rétt er enginn þeirra sem mælir með því að við tökum þetta upp fyrir utan það sem kemur frá fjármálaráðuneytinu sjálfu og er á minnisblöðum þaðan. Þetta er flókið kerfi og kostnaðarsamt fyrir ríkissjóð, fjölgar störfum. Þetta er í andstöðu við alla hagaðila og í andstöðu við þau markmið sem eru í vörugjöldunum. Því er ég enn að reyna að átta mig á því hvers vegna vægi þessa máls er svo mikið og hver hinn pólitíski tilgangur Viðreisnar er með því að leggja svona mikla áherslu á að þetta mál nái hér fram að ganga.