kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Það er rétt hjá hv. þm. Pawel Bartoszek, yfirleitt eru þeir sem eiga að borga aukna skatta ekkert sérstaklega hrifnir af því. En það er miklu fleira sem bílaleigurnar til að mynda benda á í sínum umsögnum. Það varðar einmitt breytingu á innheimtukerfinu og hvaða áhrif hún muni hafa á neysluvenjur viðskiptavinarins. Í fleiri þúsund bíla flota bílaleigunnar Hölds á Akureyri eru til að mynda aðeins örfáir rafmagnsbílar vegna þess að kúnninn vill þá ekki. Við ætlum að reyna fyrst þjóða í heiminum að neyða viðskiptavininn okkar til að fara í einhver viðskipti sem þeir kæra sig ekkert um, í samkeppni við nágrannaþjóðir okkar sem eru ekki búnar að taka þessi skref. Við erum auðvitað stolt af því hvað við höfum stækkað í ferðaþjónustu og okkur hefur fjölgað en við erum enn þá pínulítil. Af hverju telur hv. þingmaður að Ísland eigi að leiða þessa vegferð sem stærri og þéttbýlli þjóðir hafa ekki treyst sér í? Við vitum að bílaleigur erlendis, sem eru margfaldar að stærð á við það sem hér þekkist, (Forseti hringir.) hafa ekki talið sig geta leigt þessa bíla.