157. löggjafarþing — 43. fundur,  9. des. 2025.

siðareglur alþingis.

[13:03]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Ég sá fréttir eins og aðrir af orðum sem hér féllu. Ég veit ekki hvar í húsinu það gerðist, það skiptir kannski ekki öllu máli. Kannski er aðalmálið í þessu samhengi að forseti Alþingis sá að sér og baðst afsökunar. Hún gerði það bæði opinberlega stuttu eftir að umrætt atvik átti sér stað, sem við urðum ekki öll vitni að og ég hef ekki meira en bara heimildir úr fréttum um þetta, en augljós staðfesting á því a.m.k. ef afsökunarbeiðni kemur og viðurkenning á því að þetta hafi verið miður. Svo veit ég líka til þess að við upphaf þingfundar hafi hún beðið þingheim afsökunar hér í morgun þannig að ég lít svo á að þetta mál sé afgreitt að því leytinu til. Forseti sannarlega sá að sér, henni var ekki sama. Hún bað allan þingheim afsökunar og baðst líka afsökunar opinberlega og ég hef svo sem ekki meiru við það að bæta.