Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Virðulegur forseti. Mig langaði að koma upp og fagna þessu máli og taka undir með — ég held að það sé nú og vona að það verði einhugur um þetta mál hér eins og hefur verið undanfarin ár varðandi málefni Grindavíkur og mikilvægt að það verði þannig áfram og bara fagna því að sú ákvörðun hafi verið tekin að framlengja þetta um eitt ár. Þetta skiptir miklu máli á meðan við erum að fá einhvers konar, vonandi sem fyrst, lok á þessa atburði í Grindavík þannig að við getum haldið þar áfram. Það er mikilvægt fyrir íbúa Grindavíkur að fá þau skilaboð frá þinginu að það sé ekki búið að gleyma þeim og að við ætlum að halda áfram að styðja við bakið á þeim og það munum við í Framsókn gera og styðjum þetta mál.