Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Virðulegur forseti. Já, mér heyrist mikil samstaða um þetta mál og þetta mál er eitt af fjölmörgum sem afgreidd hafa verið hér frá þinginu til stuðnings Grindavík og vegna jarðelda á Reykjanesskaga. Ég vil í þessu sambandi hins vegar nefna — þetta mál kemur hér og er afgreitt í flýti og mönnum liggur á að gera það kannski fyrir áramótin núna — að það bíða fleiri slík mál og ég vil sérstaklega nefna mál er varða sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Ég hef séð að það er komin inn í samráðsgáttina sérstök lagabreyting er varðar kjörskrá í Grindavík. Ég tel að það megi ekki bíða of lengi með að afgreiða þessa löggjöf sem varðar Grindavík og menn eigi að reyna að koma fyrr inn með málin til að það sé einhver fyrirsjáanleiki í þessum málum sem varða Grindavík. Ég hlakka til að sjá hvernig menn ætla að leysa úr þeim fjöldamörgu spurningum sem upp hafa vaknað, t.d. varðandi sveitarstjórnarkosningar í Grindavík.