Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Frú forseti. Ég ætla bara að lýsa yfir stuðningi mínum við þetta frumvarp um framlengingu á því sem varðar Afurðasjóð Grindavíkurbæjar um eitt ár. Ég sé að undir nefndarálitið skrifa allir hv. þingmenn atvinnuveganefndar, þar sem lagt er til að frumvarpið verði samþykkt og er það að sjálfsögðu æskilegt að sjóðurinn haldi áfram að styðja við einstaklinga og fyrirtæki í Grindavík á meðan þessi óvissa ríkir þar, sem enn er sannarlega, frú forseti.
Ég ætlaði einnig aðeins að minnast á aðgerðir hvað varðar sveitarstjórnarkosningarnar. Núna eru einungis fimm mánuðir þar til þær verða haldnar hér á landi. Hvað varðar Grindavík þá er áríðandi að það sé tekin ákvörðun um hvernig með skuli fara, þ.e. hvernig skuli standa að sveitarstjórnarkosningum í þessu bæjarfélagi sem er sannarlega vítt og dreift um landið. Einhverjir eru fluttir aftur til Grindavíkur og hugsanlega einhverjir nýir íbúar þar og þeir munu að sjálfsögðu greiða atkvæði í Grindavík til sveitarstjórnar en það þarf að taka ákvörðun um hvernig fer með hina sem búa annars staðar og eru með lögheimili annars staðar í dag, hvort þeir, sem ég held að sé einboðið, fái að kjósa til sveitarstjórnar í Grindavík þó að þeir búi annars staðar, með einhvers konar afbrigðum, sem ég held að hafi ekki gerst hér á landi áður vegna þess að þeir séu hugsanlega ekki búnir að ákveða hvort þeir flytji aftur til baka og það sé kannski bara spurning um einhvern tíma þangað til það verður og menn hafi þá frjálst val um hvort þeir kjósi þar eða í hinu nýja bæjarfélagi sem þeir eru núna búsettir í. Þetta kallar auðvitað á breytta framkvæmd við sveitarstjórnarkosningar næsta vor hvað þetta fólk varðar og getur hugsanlega orðið erfitt í framkvæmd. En ég tel einboðið að ef þetta fólk fer ekki til Grindavíkur til að kjósa kjósi það utan kjörfundar. Það kallar á töluvert flækjustig ef þetta fólk ætlar sér að greiða atkvæði í sínu nýja bæjarfélagi á kjördag þar sem það er ekki á kjörskrá. Ég vil benda á þetta með vísan í mína reynslu við kosningar, að þetta þarf ekki að vera flókið en það þarf að taka ákvörðun um þetta þannig að fólk geti tekið ákvörðun um hvort það taki þátt í sveitarstjórnarkosningum í sínu gamla bæjarfélagi eða ekki.