157. löggjafarþing — 44. fundur,  10. des. 2025.

hafnalög.

310. mál
[12:37]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta svar. Ég ætla aðeins að halda áfram með þetta. Það kemur fram í greinargerð með frumvarpinu, með 2. gr., þar sem talað er um tilgreindar framkvæmdir, og þess vegna er ég að spyrja að þessu, hverjar þær eru fyrst þær eru þarna einhvers staðar úti. Það er líka tekið fram í greinargerð með þessari sömu grein, 2. gr., að þetta séu nauðsynlegar framkvæmdir. Þá spyr maður sig: Hvað eru nauðsynlegar framkvæmdir? Það eru mjög margar framkvæmdir, hv. þingmaður, sem eru nauðsynlegar. Það gerist oft bara í tíma að eitthvað verður skyndilega nauðsynlegt — ekki það, ég er alls ekki á móti þessari heimild sem felst í þessu frumvarpi. Ég velti t.d. fyrir mér höfnum sem verða fyrir áföllum eins og nýlega hafa orðið, kannski vegna þess að þær eru kannski ekki að fá skipakomur eins og áður hefur verið, eins og hefur verið í fréttum að skemmtiferðaskip séu ekki að koma til margra smærri hafna, hvort það þurfi að bæta eitthvað þar. Þetta er kannski nýr veruleiki. Þess vegna spyr ég hv. þingmann um þetta: Hverjar eru þessar nauðsynlegu framkvæmdir? Eru þær breytilegar og gætu þær breyst kannski strax á næsta ári? Heimilar frumvarpið að einhverju öðru sé bætt inn en er á þessum tilgreinda lista sem við höfum ekki fengið að sjá?