157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[12:20]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, við erum öll sammála um að það þurfi að ná niður verðbólgunni og þess vegna er ég að vara við því að ríkið sé að ganga hér um með fordæmi um mun hærri krónutöluhækkanir heldur en ég tel að þörf sé á. Mér finnst líka vera ákveðinn tvískinnungur í nefndaráliti meiri hlutans. Ég ætla að fá að þakka fyrir það að nefndin kemst að þeirri niðurstöðu að sóknargjöld eigi að haldast óbreytt á milli ára. Þau höfðu lagt til hér í frumvarpinu að þau ættu að lækka um 7,2% en eiga að vera óbreytt, 1.221 kr. Af hverju ákvað nefndin þá ekki að hækka þessar 1.221 kr. um 3,7% eins og allar aðrar hækkanir? Og af hverju ákveður nefndin að Ríkisútvarpið fái 3,7% hækkun en ekki sóknargjöld? Nú á enn eina ferðina að hækka (Forseti hringir.) — bara þessi krónutöluhækkun á RÚV mun auka tekjur til þess um tæpar 250 millj. kr. (Forseti hringir.) og mér finnst nú samt nóg um. (Forseti hringir.) Af hverju þessi tvískinnungur hvað sóknargjöld og RÚV varðar?

(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á tímamörkin.)