157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

verkaskipting ráðuneyta.

[15:21]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Hér er talað um hringlandahátt í málefnum aldraðra. Í lok dags hlýtur útgangspunkturinn að vera hver árangurinn er fyrir eldra fólk í landinu. Hver er árangurinn það sem af er þessu kjörtímabili fyrir eldra fólk í þessum málaflokki undir stjórn hæstv. ráðherra, Ingu Sæland? Það eru hundruð hjúkrunarrýma sem núna eru komin í framkvæmd sem sátu pikkföst inni í kerfinu, sama hvert formið var. Nú ætla ég ekki að gera lítið vissulega úr lagalegu hliðinni sem hefur verið skoðuð í þessu samhengi en útgangspunkturinn hlýtur að vera árangur í veitingu þjónustu. Undir hennar forystu og forystu þess teymis sem stóð á bak við uppbyggingu hjúkrunarheimila náðist gríðarlegur árangur. Það var mikill vilji, já, pólitískur vilji til að sú vinna myndi halda dampi. Ég get alveg sýnt því skilning að það sé vilji til að fylgja því eftir í þessu samhengi. Aðalmálið er að ramminn sé settur með þeim hætti að það sé hægt að sinna málaflokknum almennilega. Þess vegna er farin sú leið að málaflokkurinn er ekki tekinn úr ráðuneytinu en eftirfylgnin, yfirsýnin, pólitíska ábyrgðin, lagalega ábyrgðin verður eftir sem áður hjá hæstv. ráðherra, Ingu Sæland. Það er búið að gera líka hér fjöldann allan af breytingum í þessum málaflokki sem snýr að eldra fólki til að stöðva kjaragliðnun, til að styrkja fjárhag þessa hóps. Það hlýtur að vera útgangspunkturinn. Formið og auðvitað lagalega hliðin skiptir máli en í lok dags er það árangurinn sem fólk er að horfa til, þannig að ég frábið mér að stilla því þannig upp að ekkert hafi verið gert og það hafi verið hringlandaháttur þrátt fyrir að vissulega sé um óvenjulega ráðstöfun að ræða. En stundum er það bara þannig. Þegar kerfin eru komin á ákveðinn stað þá þarf að hrista upp í hlutunum. Það þarf að gera eitthvað nýtt. Það þarf að breyta eitthvað til til að hreyfa nálina og það hefur hæstv. ráðherra sannarlega gert, þannig að á þessum tímapunkti hef ég ekki meira um þetta mál að segja. Það hlýtur að vera árangur í málaflokknum sem skiptir öllu máli. Ég veit fyrir víst að þegar við verðum komin á góðan stað hvað þetta varðar þá er ekkert ólíklegt að það verði breyting þarna á ef fólk telur að það sé betra til lengri tíma.