samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni kærlega fyrir andsvarið og spurninguna. Ef við tölum um fjármálin og fjármálaáætlun þá var ég hér sem starfsmaður í desember og sat hér í hliðarsal og horfði á hv. þingmann og aðra kollega og vini hans og okkar í minni hlutanum reyna allt hvað þeir gátu að koma, með fullri virðingu, vitinu fyrir hæstv. ríkisstjórn hvað varðaði allar þessar skattahækkanir. En skattahækkanir eru bara mannanna verk. Þetta eru ekkert sérstaklega flókin fræði. Þú setur einhver markmið, setur einhver plön og svo ferðu eftir því. Hvort allir flokkarnir í ríkisstjórninni séu í grunninn skattahækkunarflokkar er svo annað mál en svo bara verður þú einhvern veginn að dansa með þegar þú ert í samsteypustjórn. En já, skattar eru mannanna verk og efnahagshorfurnar hvað varðar þessa skatta og vörugjöldin, sem er mikið búið að vera í fréttunum — við þessu öllu var varað og ekki bara af okkur hv. þingmönnum minni hlutans, við vorum mestmegnis bara að enduróma mjög svo sterkar umsagnir frá hagsmunaaðilum og fyrirtækjum í atvinnulífinu sem bentu hæstv. ríkisstjórn á að svona myndi þetta fara. Nú erum við að horfa upp á það að peningastefnunefnd Seðlabankans kallar verðbólguspána nöturlega fyrir land og þjóð. Það eru kannski ekki bestu og skemmtilegustu orðin til að fá hér í dimmasta skammdeginu. Miðað við efnahagshorfurnar sem eru ansi áþreifanlegar, í ljósi þess hvað var búið að segja hér um fjármálin eftir þessar skattahækkanir hæstv. ríkisstjórnar, þá er ég alveg sammála hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni að það er mjög erfitt að sjá fjármálaáætlun 2026 dansa í takt við samgönguáætlun ef þetta á að tengjast og þetta er að tengjast fjármálaáætlun, ég verð að taka undir það.