157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:51]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisræðu. Ég sé að hæstv. ráðherra er hér í salnum en hann hefur verið talsvert mikið viðverandi og tekið þátt í umræðunni; það er vel og ber að hæla honum fyrir það. En mig langar aðeins, af því að ég hef ekki náð að eiga orðaskipti við hæstv. ráðherra um það, að lauma því inn í spurninguna til hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar að hvetja hæstv. ráðherra til að lesa þingsályktunartillögu, sem ég er fyrsti flutningsmaður að, um að flýta framkvæmdum á Öxi, sem er líklega einhver arðbærasta framkvæmdin sem er í boði næstu árin af þeim sem eru fullunnar.

Mig langar annars að spyrja hv. þm. Njál Trausta Friðbertsson út í — við höfum farið allvíða í þessari umræðu á þessum skamma tíma en hér vorum við að ræða eitthvað sem er skoðun. Það voru afar skemmtileg samskipti hér áðan, milli hv. þm. Þórarins Inga Péturssonar og hv. þm. Ásu Berglindar Hjálmarsdóttur, þar sem það kristallaðist einhvern veginn að við viljum svolítið draga framkvæmdirnar nær okkur en að sumt er þó ekki skoðun, sumt er staðreynd. Það er staðreynd að undanfarin ár, allmörg ár, hefur sama fólkið mátt sæta því að kosningaloforðin hjá öllum framboðum, leyfi ég mér að segja, hafa verið svikin. Þar má nefna Bárðardalsveg vestari. Ég held að það hafi enginn þingmaður í framboði í Norðausturkjördæmi ekki lofað Bárðdælingum því að gera þar vegabætur og þá er ég ekki að tala um 3 km. Það má nefna veginn um Útkinn sem síðast komst í fréttir, held ég, þegar skriðuföllin voru þar, aurskriðurnar. Þá sá fólk myndir af því í sjónvarpinu við hverslags reiðgötu bændur búa í þeirri sveit. Það ber að nefna það í þessu samhengi að neðsti bærinn í Útkinn er myndarlegt mjólkurbú þannig að þessi vegur verður að bera tiltölulega þunga umferð. Hvað vill hv. þingmaður segja mér um það? (Forseti hringir.) Hvernig getum við fengið stjórnvöld, og ég er ekki bara að tala um þau stjórnvöld sem sitja núna, mér sýnist (Forseti hringir.) þetta vera orðin saga sem ætlar að skrifa sig áfram, hvernig getum við fengið ráðamenn og hæstv. ráðherra til að horfa á þetta fólk sem alltaf er svikið?

(Forseti (EÁs): Forseti ítrekar ræðutíma sem er tvær mínútur.)