157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:25]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Hér hafa farið fram í dag fróðlegar umræður um samgönguáætlunina og eins og jafnan þegar samgöngumál eru rædd þá fer nú meira fyrir umræðu um framkvæmdir úti á landi, kannski skiljanlega í ljósi þess að þingmenn utan af landi eru miklu fleiri heldur en þingmenn á höfuðborgarsvæðinu, hvað þá þingmenn Reykjavíkur þegar á heildina er litið og menn sýna skiljanlega kjördæmum sínum mikinn áhuga. Þess utan eru mörg brýn verkefni á landsbyggðinni sem þarf að ráðast í alla jafna en einkum þessi misserin þar sem hægt er að taka undir að vegasamgöngur og viðhald vega hafi verið aftarlega í forgangsröðun ríkisstjórna undanfarin ár af ýmsum ástæðum. Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir nefndi hér sem dæmi hundruð milljarða kr. útgjöld til aðgerða í nafni sóttvarna á Covid-tímanum og sagðist stolt af þeim útgjöldum, taldi að það hefði verið góð forgangsröðun að henda hundruðum milljarða í þau verkefni. Ég veit ekki hversu mikið situr eftir af því og ég er henni ósammála um það og benti á það á sínum tíma að þau útgjöld og sú forgangsröðun með þeim hætti kæmi auðvitað niður á grunninnviðum, innviðum eins og vegakerfinu sem dæmi sem eru að mörgu leyti lífsnauðsynlegir innviðir. Við höfum sem sagt ekki enn þá bitið úr nálinni með þá forgangsröðun og þá meðferð almannafjár sem var viðhöfð á tímum hins svokallaða faraldurs, Covid-faraldursins.

En allt að einu, menn þurfa að horfa fram á veginn og það eru allir sammála um að það þurfi að gera betur í samgöngumálum. Út á það gengur þessi samgönguáætlun og ég hygg að allir þingmenn geti tekið undir markmiðin og þá framtíðarsýn sem kynnt er hér með þessari þingsályktunartillögu og í sjálfu sér aðgerðirnar þótt auðvitað hljóti áherslurnar að liggja með ýmsum hætti og vera mismunandi á milli ráðherra af ýmsum ástæðum, kannski ekki bara með vísan til kjördæmanna sem þeir koma frá, heldur vonandi líka í ljósi áherslna að öðru leyti. Fyrst og fremst held ég að menn ættu að sammælast um að vegir séu öruggir eins og er tilgreint hér, það er sérstakt markmið tiltekið hér fyrst og fremst og er framarlega, þ.e. að tryggja umferðaröryggi og draga úr slysum í umferðinni. Það er eitt.

Virðulegur forseti. Ég ætla að leyfa mér, eins og ég hef heyrt hjá mjög mörgum hv. þingmönnum í dag, að viðhafa hér forhert og blygðunarlaust kjördæmapot. Ég tel ekki vanþörf á því fyrir hönd Reykjavíkur þar sem ég er þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður og allra Reykvíkinga beggja Reykjavíkurkjördæmanna. Það er ekki of djúpt tekið í árinni að halda því fram að Reykjavík hafi borið mjög skarðan hlut frá borði þegar kemur að framkvæmdum í tengslum við vegasamgöngur. Nú beini ég sjónum mínum aðallega að Reykjavík, ekki höfuðborgarsvæðinu. Margir þingmenn hafa komið hér upp og tiltekið réttilega að þeir séu þingmenn af hinu svokallaða höfuðborgarsvæði og eru þá að vísa til Suðvesturkjördæmis, til Stór-Reykjavíkursvæðisins og bæjarfélaganna í kringum Reykjavík. En þar eru aðstæður oft allt aðrar en í Reykjavík. Ég fullyrði það hér og hef gert það áður að aðstæður Reykvíkinga hafa algjörlega verið fyrir borð bornar og líka í samanburði við aðstæður íbúa í nágrannasveitarfélögunum. Því miður hefur það verið þannig að hinn svokallaði samgöngusáttmáli sem gengur út á borgarlínuna svokölluðu — sem eitt sinn var haldið fram að ætti að vera einhvers konar lestarkerfi um höfuðborgarsvæðið, Stór-Reykjavíkursvæðið, en er ekkert annað en strætisvagnakerfi, ofvaxið strætisvagnakerfi sem menn eru að þráast við að byggja upp með einhverjum afar kostnaðarsömum og allt of dýrum lausnum — því miður hafa nágrannasveitarfélögin gengið í þá gildru, gengið í spínatið, tekið þátt í því með þessum höfuðborgarsáttmála, ekki vegna þess að þau séu að kalla eftir borgarlínu eða ofvöxnu almenningssamgöngukerfi, nei, heldur vegna þess að með því að gangast höfuðborgarsáttmálanum á hönd hafa þessi nágrannasveitarfélög Reykjavíkur fengið verklegar framkvæmdir. Þau hafa fengið þær framkvæmdir og samgöngubætur sem þau hafa kallað eftir um árabil, réttilega, t.d. mislæg gatnamót við hættulegar umferðaræðar. Það hefur gengið eftir í þágu þessara nágrannasveitarfélaga en eftir situr Reykjavík í rykinu, situr uppi með kostnaðinn og algerlega ónothæft og óboðlegt samgöngukerfi innan borgarinnar.

Því miður ætlar þessi ríkisstjórn að þráast við og halda þessari furðuvegferð áfram sem ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og vinstri flokkanna kynnti hér á árum áður með þessu samkomulagi. Þetta samkomulag er þó ekki bindandi, það er auðvitað með fyrirvara um samþykki þingsins. Þingmenn þurfa að hafa það í huga að það er þingið sem þarf að leggja á það mat hvort fé skattgreiðenda sé skynsamlega varið í það, 300 milljörðum, 300 milljarða uppbyggingu — eða ekki uppbyggingu, í rauninni niðurrifi, yfir 300 milljarða kr. niðurrifi á samgöngum innan borgarmarkanna innan Reykjavíkur. Það er verið að leggja til að 300 milljörðum verði varið í það að þrengja að umferð, að draga úr umferðaræðum, draga úr möguleikum Reykvíkinga á að ferðast á bíl á milli svæða innan Reykjavíkur. Þetta er ákvörðun sem þingið þarf að taka, hvort þessu fé verður varið með þessum hætti.

Í þessari stuttu ræðu vil ég bara nefna að það er brýnt hér í Reykjavík að fjölga umferðaræðum til að greiða fyrir umferð innan borgarmarkanna. Það er hægt að gera með miklu ódýrari og skilvirkari hætti heldur en hinn svokallaði höfuðborgarsáttmáli kveður á um, með miklu hagkvæmari hætti en það sem er núna í bígerð og deiliskipulagstillaga kveður á um, sem er til meðferðar hjá Reykjavíkurborg í dag, en það er þrenging Suðurlandsbrautar, svo ég taki eitt dæmi í þessari gölnu hugmynd. Það liggur fyrir deiliskipulagstillaga um að þrengja Suðurlandsbrautina um tvær akreinar. Þetta er gata þar sem 25.000 bílar fara um á hverjum einasta degi og það á að þrengja götuna um tvær akreinar. Þetta á að kosta 300 milljarða yfir langan tíma. Svo á ekkert að gerast samkvæmt þessari samgönguáætlun í rauninni næstu fjögur árin vegna þess að allt er þetta mjög afturhlaðnar vonir og væntingar, kosta mikið og kalla á framkvæmdir sem myndu raska umferð með ófyrirséðum hætti næstu ár. Ég hvet hv. umhverfis- og samgöngunefnd til að skoða og halda sérstaka fundi, marga fundi, sérstaklega um hagsmuni Reykjavíkur, höfuðborgarinnar, í þessu sambandi til að draga fram raunverulegan kostnað (Forseti hringir.) og afleiðingar sem þessar tillögur sem hér eru kynntar munu hafa á umferð í Reykjavík.