samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Það er búið að vera áhugavert að fylgjast með þessari góðu umræðu sem átt hefur sér stað undanfarna tvo daga á þinginu um samgönguáætlun næstu ára. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það hversu mikilvægar öruggar, greiðar og góðar samgöngur eru fyrir okkur öll; fyrst og fremst fyrir íbúa í landinu, flutninga og þá sem sækja okkur hingað heim. Í þessari stuttu ræðu í fyrri umræðu langar mig aðeins að stinga mér inn í mál sem tengjast mínu kjördæmi, Suðvesturkjördæmi. Ég tek undir það að áhyggjur af fullfjármagnaðri samgönguáætlun eru skiljanlegar og það er eitthvað sem á eftir að ganga úr skugga um, hvernig raunverulega er hægt að fullyrða að svo sé og hvað er þar á bak við.
Þetta er náttúrlega fyrri umræða og ég tek líka undir það að í svona gríðarlega viðamiklu máli, svona stóru máli sem snertir allt landið, okkar dreifbýla land, þéttbýli og dreifbýli, þá hefði verið gott að hafa haft málið í samráðsgátt til þess að fá viðbrögð héðan og þaðan af landinu og vinna það og ræða þannig hér í fyrri umræðu. En það hefur verið ákveðið að hafa annan háttinn á og það er svo sem búið að ræða það talsvert hérna síðustu klukkutímana hversu bagalegt það er. Þá býst maður við því að málarekstur, umfjöllun og meðferð málsins í viðeigandi nefnd muni taka þeim mun lengri tíma því að maður veit að umsagnir til nefndarinnar og til þingsins vegna þessa máls eiga eftir að verða fjölmargar.
Í þessari samgönguáætlun er það sem viðkemur mínu kjördæmi, Suðvesturkjördæmi, ekki svo ýkja mikið. Jú, það er þarna stór og mikill samgöngusáttmáli. Hann er útskýrður og það er farið yfir hvað fólst í þeirri endurskoðun á sáttmálanum sem átti sér stað fyrir nokkrum misserum. Við endurskoðunina voru gerðar ákveðnar breytingar og hann framlengdur um sjö ár. Það þótti raunsærra að gera það með tilliti til allra þátta; með tilliti til raunverulegs mögulegs framkvæmdahraða, með tilliti til fjármagns og fleiri þátta. Tíminn líður hratt og þetta þótti raunhæfara.
Varðandi umræður sem ég heyrði hérna rétt áðan af hálfu hv. þingmanns í Reykjavík, Sigríðar Á. Andersen, um það hvað samgöngusáttmáli hefur þýtt fyrir höfuðborgina og þá sem ferðast um hana, þá hefur maður ákveðinn skilning á þeirri afstöðu, bara eiginlega dálítið mikinn skilning. Það er hárrétt sem kom fram í máli hennar að þau sveitarfélög hér í kringum Reykjavík, í Kraganum svokölluðum, sem undirrituðu þetta samkomulag voru ekki síst, og fyrst og fremst, mjög áfram um það að í þessu plaggi, í þessu samkomulagi, yrði fest aukið fjármagn til stofnframkvæmda sem setið höfðu á hakanum. Það er þessum sveitarfélögum gríðarlega dýrmætt og gerði það að verkum að pólitísk samstaða náðist á meðal þeirra sem voru við stjórnvölinn í sveitarfélögunum, í ríkisstjórn og á Alþingi á þeim tíma, að fara þessa leið.
Það hefur líka náðst samkomulag um að það voru gerðar ákveðnar breytingar í fyrra sem leiða til þess að eigendurnir, fulltrúar sveitarfélaganna og ríkisins, eiga beinni og meiri aðkomu að öllu verkefninu heldur en var í fyrra samkomulagi. Maður bindur því miklar væntingar við að samningurinn verði aðlagaður og að farið verði í verkefnin eftir mat á þeim verkefnum sem hafa verið framkvæmd og þau metin reglulega af raunsæi og ábyrgð. Í samgönguáætlun er komið inn á þetta. Maður hefði viljað, þótt það kannski bíði seinni tíma, fá þetta aðeins betur á hreint, það tengist kannski ekki beint framlagningu samgönguáætlunar, en samt, hvar og hvernig ríkið hyggst útfæra fjármögnun sáttmálans. Það er eitthvað sem við eigum eftir að ræða og ríkið hefur ekki enn komið fram með og ég veit að sveitarfélögin bíða eftir því.
Þess sem maður saknar, eða við hefðum viljað sjá, og snertir sérstaklega íbúa Suðvesturkjördæmis, íbúa Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Kópavogs og annarra sem eiga leið um þessi sveitarfélög og á milli þeirra, er aukinn kraftur í uppbyggingu svokallaðs Flóttamannavegar. Það hefur verið gríðarlegt hagsmunamál og mikið verið þrýst á það að Flóttamannavegurinn verði byggður upp og gerður að alvörusamgöngumannvirki. Hann fer í gegnum þrjú sveitarfélög, Hafnarfjörð, Garðabæ og Kópavog, og ástand vegarins er víða mjög slæmt. Það er orðið bráðnauðsynlegt að laga þennan veg því hann er mjög mikið notaður í dag. Í þessum vaxandi sveitarfélögum, Garðabæ og Hafnarfirði, er hann gríðarlega mikið notaður. Fólk flæðir á milli, það er að vinna á milli þessara sveitarfélaga. Það er stórt og mikið atvinnusvæði á Völlunum í Hafnarfirði og á Hraununum og þangað sækja þúsundir manna vinnu. Það gefur augaleið að eftir því sem fyrirtækjunum hefur fjölgað, eftir því sem íbúunum hefur fjölgað í þessum sveitarfélögum, þá er þessi vegur notaður meira og meira. Vegagerðin er algerlega sammála og áttar sig á þessu. Í sumar var tekið saman minnisblað af hálfu Vegagerðarinnar um forsendur fyrir því að fara í hönnun á þessum vegi. Það var stofnaður stýrihópur sem komst að þeirri niðurstöðu að þetta væri mjög mikilvægt. Því veldur það gríðarlegum vonbrigðum, svo ekki sé meira sagt, að Flóttamannavegurinn sé einungis að fá 50 milljónir á þessu ári og því næsta, svo glittir ekki í neinn meiri pening. Það glittir ekki í neitt meira fjármagn. Við gerum mjög lítið fyrir 100, 200 milljónir í hönnun og hvað svo?
Í samgöngusáttmálanum er framkvæmd sem hefur verið beðið mjög mikið eftir á Reykjanesbrautinni á milli Lækjargötu og Kaplakrika, framkvæmd sem er í samgöngusáttmálanum. Þar verður ráðist í göng eða aðrar góðar almennilegar framtíðarlausnir því þar fara tugþúsundir bíla í gegnum bæinn á hverjum einasta degi og vandinn sem því fylgir vex jafnt og þétt. Á meðan á framkvæmdum á þeirri braut stendur er enn þá mikilvægara að Flóttamannavegurinn hafi verið byggður upp og hann nýtist sem önnur leið þarna í gegn, ekki síst til þess að tryggja öryggi íbúa og annarra sem vilja nýta þessa leið á milli sveitarfélaganna. Það eru mjög mikil vonbrigði að sjá að það sé ekki verið að horfa til framtíðar hvað þann veg varðar. Þetta varðar tugþúsundir manna, þetta snertir tugþúsundir manna.
Ég sé að tími minn er búinn. (Forseti hringir.) En ég hefði líka viljað koma inn á vonbrigði sem felast í því hve litlum fjármunum, og ekki fyrr en eftir tvö, þrjú ár, (Forseti hringir.) á að verja til sjóvarna á Seltjarnarnesi og Álftanesi þar sem mikið tjón (Forseti hringir.) varð í ofsaveðri fyrir nokkrum misserum.