157. löggjafarþing — 57. fundur,  20. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:16]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Hér erum við að ræða samgönguáætlun og mig langar að fagna því að samgönguáætlun sé loksins komin á dagskrá á Alþingi Íslendinga. Þetta er mikilvægt mál og maður finnur það hér í þinginu í gær og í dag að þetta er mál sem snertir hvern einasta þingmann og allir hafa skoðun á. Því er mikilvægt að gefinn sé rúmur tími til að ræða þetta mál, sérstaklega í ljósi þess að ríkisstjórnin eða ráðherra ákvað að þetta mál færi ekki í samráð. Þykir mér það mjög miður og það samráðsleysi mun óneitanlega setja allt annan lit á vinnuna sem fram undan er í nefndinni og hlýtur að þýða það sömuleiðis að það þurfi miklar gestakomur. Þetta er það sem við þingmenn stjórnarandstöðunnar höfum margítrekað bent á á þessu fyrsta ári nýrrar ríkisstjórnar, þ.e. breytt vinnubrögð hér í þinginu. Þegar farið er svona út fyrir hefðbundið vinnulag þá þýðir það að málin færast óneitanlega frekar inn í þingsal.

Hér hefur ríkisstjórnin talað og farið mikinn um að samgönguáætlunin sé fullfjármögnuð og ég ætla að lýsa yfir vonbrigðum með það orðalag sem ráðherrar og þingmenn stjórnarflokkanna hafa notað hér og með því slegið ryki í augu kjósenda. Besta dæmið má eiginlega segja að sé að hér hefur mikið verið rætt um innviðafélag sem á að breyta miklu og lyfta grettistaki eftir því sem stjórnarliðar segja. En það hefur ekki enn verið stofnað og ég get ekki betur séð en að það sé þó nokkuð í að það verði stofnað og við vitum nákvæmlega ekkert um hvernig lagaumgjörð þessa innviðafélags verður háttað. Í umræðunni í gær ræddi ráðherra um að inn í félagið ættu að fara ýmsar tekjuberandi eignir. Ég kalla eftir því og það færi ágætlega á því að ríkisstjórnin myndi upplýsa þingheim um það hvaða tekjuberandi eignir þetta eru sem eiga að renna inn í þetta innviðafélag.

En það vantar ekki slagorðin í vinnu þessarar ríkisstjórnar og þessi fyrirsagna- og slagorðaflaumur sem mætir manni frá ríkisstjórninni nánast á hverjum degi kemur manni alltaf á óvart. Þegar þessi samgönguáætlun var kynnt þá var það auðvitað gert með miklum bravúr og hér var hrópað til landsmanna: Við erum að fara að ræsa vélarnar. Við erum að fara að ræsa vélarnar og haldið ykkur fast. Ég kalla þá bara: Hvaða vélar er verið að ræsa og hvar eru þessar vélar? Þetta er svona álíka trúverðugt eða ótrúverðugt og sleggjan margumtalaða sem átti að beita til að ná niður vöxtum, átti að breyta öllu í íslensku efnahagslífi. Enn er verið að leita að sleggjunni og hún hefur ekki fundist, enda hefur ríkisstjórninni ekki tekist að hreyfa niður vextina né verðbólguna. Því spyr ég aftur: Hvaða vélar á að fara að ræsa? Það var reyndar fagnaðarefni að sjá myndir í gær á samfélagsmiðlum Samfylkingarinnar þar sem forsætisráðherra var þó alla vega undirbúin, var búin að setja hjálm á höfuð sér til að vera undirbúin fyrir þær miklu framkvæmdir sem hér er boðað til. Þetta minnir mann óneitanlega líka á flugeldasýninguna sem ríkisstjórnin fór í þegar hún kynnti húsnæðispakkann, því þá var sagt: Haldið ykkur fast. Hér í Úlfarsárdal munuð þið sjá krana á árinu 2026. Ég get sagt það fullum fetum við landsmenn að þeir munu ekki sjá einn einasta krana í Úlfarsárdal á þessu ári, ekki einn einasta. Ekki á svæði sem er ekki deiliskipulagt, allir vita að það tekur lengri tíma. Sömuleiðis tekur langan tíma að skipuleggja samgöngumannvirki.

Þessar vélar margumtöluðu sem á að ræsa og setja í gang held ég að gildi ekki fyrir Austfirðinga eða jarðgangaframkvæmdir þar, þar sem var búið að lofa Austfirðingum jarðgöngum. Ég finn ekki annað en að Austfirðingar telji sig svikna af núverandi ríkisstjórn sem tekur nú nýja ákvörðun varðandi gangagerð og byggir ákvörðunina m.a. á skýrslu sem innviðaráðherra las ekki, nennti ekki að lesa, viðurkenndi að hann hefði bara alls ekki lesið en byggði samt ákvörðun sína á þeirri skýrslu. Enn eitt dæmið um vond vinnubrögð svokallaðrar verkstjórnar.

Virðulegi forseti. Ég vil fá að beina máli mínu sérstaklega að því hvernig þessi samgönguáætlun sem innviðaráðherra hefur hér lagt fram snertir Suðurkjördæmi, mitt kjördæmi, sem er eitt stærsta og fjölmennasta kjördæmi landsins og fer ört vaxandi. Suðurkjördæmi er ekki jaðarsvæði í íslensku samgöngukerfi. Þar búa tugþúsundir manna. Þar fer fram stærsti hluti matvælaframleiðslu landsins. Í Suðurkjördæmi liggja helstu flutningsleiðir milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar og einnig eru þar stærstu ferðamannastaðir landsins. Þrátt fyrir það þá er staða kjördæmisins í samgönguáætluninni veikari heldur en á að vera miðað við mikilvægið. Það sem manni finnst einkenna áætlunina gagnvart Suðurkjördæmi er skortur á skýrri forgangsröðun, frestun nauðsynlegra verkefna og ósamræmi á milli orða og verka. Við í Suðurkjördæmi þekkjum vel afleiðingar þess þegar samgöngukerfið ræður ekki við raunveruleikann. Umferð á Suðurlandsvegi hefur aukist langt umfram það sem vegurinn var hannaður fyrir. Umferðartafir, slysahætta og óöryggi er orðið daglegt brauð, ekki síst fyrir íbúa Selfoss, Hveragerðis, Þorlákshafnar, Árborgar og nærliggjandi sveitarfélaga. Því miður þá eru slys allt of tíð og allt of alvarleg þegar við erum komin austar í kjördæminu, slys ferðamanna, hvort sem það eru stærri ökutæki eins og rútur eða einstaklingar á ferð. Þrátt fyrir þetta er tvöföldun og uppbygging stofnvega á Suðurlandi ekki sett í þann forgang sem tilefni er til. Verkefni eru nefnd en tímasetningar eru óljósar og fjármögnun er ótrygg. Það er ekki nægjanlegt að hafa áform í huga þegar öryggi fólks er í húfi, virðulegi forseti.

Ég vil einnig fá að nefna nokkur verkefni í kjördæminu en fyrst vil ég fá að færa ráðherra þakkir því okkur ber líka að þakka fyrir það sem vel er gert. Ég vil þakka ráðherra fyrir að vera kominn af stað með rannsóknir á gangagerð milli lands og Eyja. En ég verð að gagnrýna ráðherra fyrir seinkun á tvöföldun Reykjanesbrautar, hún er ekki sett á dagskrá fyrr en á 2. hluta árið 2031. Þessi tvöföldun er verulega mikilvæg samgöngubót fyrir okkur öll því þetta er vegurinn frá Fitjum og að flugstöð. Ég ætla líka að fá að nefna færslu þjóðvegar í Ölfusi sem átti að vera búin en hefur verið frestað og hefur verulegar afleiðingar á þróun byggðar í mínum heimabæ. Ég vil fá að nefna Reynisfjall og göng þar, hringveg við Jökulsá, færslu vegar þar og sjóvarnir, sem eru jú settar 2027, en það er einbreið brú t.d. yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi og það á ekki að afnema þá brú fyrr en á 2. eða 3. tímabili og þannig mætti lengi telja.

Mér sýnist að ég sé að verða búin með minn tíma og aftur vil ég segja að þetta er eitt stærsta mál þessa vorþings og ég biðla til ríkisstjórnarinnar (Forseti hringir.) að gefa þessu máli rúman tíma, hvort sem er hér í þingsal eða í nefndarvinnunni. Ég hvet ráðherra eindregið til að endurskoða þessa áætlun (Forseti hringir.) með hagsmuni alls landsins í huga, hafa landið allt að leiðarljósi og leggja fram skýrari, sanngjarnari og raunhæfari samgönguáætlun því fólkið í landinu á betra skilið.