157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

ábyrgð ráðherra á málaflokkum ráðuneyta.

[10:32]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Í sameiginlegri yfirlýsingu forsætisráðuneytisins, félags- og húsnæðismálaráðuneytisins og barna- og menntamálaráðuneytisins frá 17. janúar síðastliðnum segir að hæstv. barna- og menntamálaráðherra fari með stjórn málefna um uppbyggingu hjúkrunarheimila og þjónustu íbúða fyrir eldra fólk en að ábyrgðin á málaflokknum sé engu að síður hjá félags- og húsnæðismálaráðherra, enda hafi málaflokkurinn ekki verið fluttur á milli ráðuneyta. Í þessu felst að vald og ábyrgð á málaflokknum hefur verið klippt í sundur og barna- og menntamálaráðherra ráði málaflokknum en félags- og húsnæðismálaráðherra beri ábyrgð á honum. Slíkt fyrirkomulag brýtur bersýnilega í bága við bæði stjórnarskrá og lög um Stjórnarráðið.

Þrátt fyrir þessa skýru sameiginlegu yfirlýsingu á vefsíðu Stjórnarráðsins stangast hún á við fullyrðingar hæstv. forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma hér síðastliðinn mánudag þar sem hún hélt því fram að lagaleg ábyrgð á málaflokknum væri hjá barna- og menntamálaráðherra. Í ljósi þess að tvennum sögum fer nú um ábyrgð á þessu mikilvæga málaflokki vil ég spyrja hæstv. barna og menntamálaráðherra: Hvað er eiginlega hið rétta í málinu? Tilkynning ráðherranna á vefsíðu Stjórnarráðsins eða orð hæstv. forsætisráðherra í pontu Alþingis? Hver ber lagalega ábyrgð á málaflokknum?