hækkun á gjaldskrám Veitna.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið en ég hefði viljað fá skýrari afstöðu hans til þess að arðgreiðslur úr þessu fyrirtæki fari beint inn í rekstur höfuðborgarinnar og að notendur, sem eru í tugþúsundatali í nágrannasveitarfélögunum, séu þar með að taka á sig aukin gjöld til að fjármagna hallarekstur í borginni. Ég hefði viljað fá skýrar fram afstöðu hans til þess, hvað honum finnist um það í raun og sann. En vegna þess að hann talar um heildarlög þá vil ég spyrja: Má búast við því að hæstv. ráðherra beiti sér fyrir því að arðgreiðslukrafan verði þá lækkuð til framtíðar? Einnig langar mig að fá viðbrögð hans við ummælum formanns flokks hans, Samfylkingarinnar, og hæstv. forsætisráðherra á Vestfjörðum í sumar þar sem hún talaði um það að hún myndi vinna að því að jafna húshitunarkostnað eftir landshlutum og talaði um sérstakt auðlindagjald á fyrirtækin í því sambandi. Er hæstv. ráðherra sammála sínum formanni (Forseti hringir.) og myndi hann styðja það að jafna húshitunarkostnað með gjaldtöku á fyrirtækin?