Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Þetta var einhver furðuframsetning af hálfu hv. þingmanns, ef ég má komast svo að orði, að hann líti ekki svo á að með því að við gengjum í ESB þá værum við að segja upp EES-samstarfinu, að við værum þá áfram í EES-samstarfinu en bara líka í ESB. Eru þá Svíar og Finnar EES-þjóðir, er það það sem hv. þingmaður er að bera hér á borð? Er hann að gera því skóna að EES-samstarfinu sé ekki teflt í hættu og að það sé ekki verið að grafa undan því með þessari vegferð í átt að ESB? Ég er bara svo hissa að heyra þessa framsetningu hv. þingmanns, ég verð að segja það. Mér finnst það liggja í hlutarins eðli að með því að að vera hér með kosningabaráttu sem gengur út á það að við göngum út úr EES-samstarfinu, hættum í EES-samstarfinu og göngum inn í Evrópusambandið, þá séum við auðvitað að hætta í því samstarfi, rétt eins og Svíar og Finnar gerðu.