157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[14:13]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir spurningu sem ég hef oftsinnis fengið áður inni í þessum sal en eiginlega aldrei utan hans. Þessar áhyggjur af umboðsleysi Samfylkingarinnar og ríkisstjórnar Kristínar Frostadóttur til að fara í þessa þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvert skuli áfram stefnt, um áframhaldandi viðveru okkar í EES-samstarfinu eða hvort rétt sé að kanna kosti þess sem kann að búa að baki aðildarsamningi og sjá hvernig hann síðan lítur út — þetta hefur alltaf verið stefna Samfylkingarinnar. (Gripið fram í: Ha? )Þetta er stefna Samfylkingarinnar og umboð þessarar ríkisstjórnar til að fara í þessa vegferð er mjög skýrt. Það þarf ekki annað en að kynna sér sögu stjórnmálaflokksins Samfylkingarinnar til þess að átta sig á því að það hefur alltaf verið stefna Samfylkingarinnar að leyfa þjóðinni að eiga lokaorðið um þetta. Ég ætla ekki að fara í einhverja upptalningu á prósentum og tilfærslum og greiningum á því hvort og að hvaða leyti Evrópusambandið hafði lokaútslagið í síðustu alþingiskosningum. Það var mjög margt ofar á baugi í þeim kosningum og ekki að ástæðulausu eins og ég fór yfir í ræðu minni. Samfylkingin er Evrópusinnaður flokkur. Við erum hins vegar ekki tilbúin til þess að undirrita hvað sem er, á hvaða forsendum sem er. Við viljum sjá þennan aðildarsamning en fyrst þurfum við að spyrja þjóðina. Innan Samfylkingarinnar, og þetta er mikilvægt, eru margir meðlimir sem hafa ekki áhuga á því að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið. (Forseti hringir.) Það er svo sannarlega rými fyrir slíkar skoðanir í okkar flokki.