157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[14:31]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Það er nefnilega nákvæmlega málið með umræðuna sem við erum að taka hér og þá sem hefur að einhverju leyti verið í samfélaginu og varðar varnar- og öryggismál, að risastór hluti hennar, sá mikilvægasti og nauðsynlegasti þegar alþjóðamál ber á góma, er að fræða en ekki að hræða. Það er lykilatriði og að mörgu leyti held ég að nú sé verið að beita einhverjum hræðsluáróðri í tengslum við Evrópusambandsumræðuna. Það er ekki gott og vonandi get ég farið betur inn í umræðuna sem snýr að varnar- og öryggismálum í Norður-Atlantshafi og á norðurslóðum í minni ræðu hér á eftir. Vonandi getum við tekið einhverja umræðu um það. Mikil breyting hefur orðið í umhverfi okkar (Forseti hringir.) á síðustu árum, sérstaklega frá 2018 þegar ákveðin þróun hófst. Vonandi getum við haldið áfram með þá umræðu hér.