Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir að efna til þessarar umræðu hér í dag. Það hafa vissulega verið ótrúlega mikilvægir og krefjandi tímar undanfarið og kannski minnt okkur á hversu mikilvægt það er fyrir Ísland að vera í öflugu alþjóðlegu samstarfi. Umræðan hefur stundum farið út í það að nú sé tækifæri til að velja og hafna, velja bandamenn og hafna öðrum. En ég held að á slíkum tímum skipti máli að við séum að efla alþjóðleg tengsl heilt yfir. Við búum að því að Evrópu gangi vel og við eigum að vera í öflugu Evrópusamstarfi og við erum það í gegnum EES-samninginn. Við eigum líka að vera í öflugu samstarfi við Bandaríkin og þar eigum við ekki að láta einstaka punktstöðu ráða hvar olíuskipið, stóra skipið sem utanríkismál Íslands eru, endar heldur að horfa lengra fram í tímann og átta okkur á því að pólitískar áherslur, með einstaka þjóðarleiðtogum, geta líka breyst. Ég segi það af því að ég bjó í Bandaríkjunum á tímum ólíkra forseta, þegar Obama var forseti, þegar Biden var forseti, og Trump, og það verða eðlilega breytingar þó að það séu auðvitað miklar öfgar og mjög krefjandi staða sem við höfum upplifað núna.
Við þurfum að rækta betur tengslin við Bandaríkin, ég tek undir það og fagna því að það hafi verið nefnt hér í dag og mér finnst jákvætt að hæstv. ráðherra tali um að það eigi að stækka og efla sendiráðið í Washington. En það þarf líka að kortleggja betur ólík tengsl sem Ísland á sem snúa að atvinnulífi, akademíu og ólíkum þáttum okkar samfélags af því að það mun koma til með að reyna meira á óformlegar boðleiðir í þessum heimi því að diplómasía er að veikjast. Samskipti þjóðarleiðtoga fara mun meira fram í gegnum einhvers konar skilaboð eða samfélagsmiðla. Diplómasía hefur verið að veikjast og þess vegna eigum við að treysta okkur með því að vera með öfluga utanríkisþjónustu en líka með því að þekkja þær fjölmörgu boðleiðir sem Ísland á í gegnum öflugt atvinnulíf, í gegnum öflugt háskólastarf og fleiri aðila. Það mun skipta máli.
Ég vil líka horfa aðeins til baka í sögunni. Vissulega er erfið staða núna í norðurslóðamálum. Það er ekkert rosalega langt síðan hún var allt önnur. Það er ekki lengra síðan en 2021 að Ísland fór með formennsku í Norðurskautsráðinu sem fól m.a. í sér að utanríkisráðherrar allra norðurskautsríkjanna, þar á meðal Rússlands og Bandaríkjanna, komu hingað til lands og þá var verið að semja um það sem var á þeim tíma fyrsta sameiginlega norðurskautsstrategían. Eins og við vitum hefur margt gerst síðan þá. Innrásin í Úkraínu lamaði Norðurskautsráðið og skapaði í raun og veru póla á milli Rússlands og hinna norðurskautsríkjanna og síðan hafa þau átök sem hafa nú verið á milli Bandaríkjanna og annarra norðurskautsríkja, þ.e. norðurskautsríkja Evrópu og Kanada, leitt af sér að það eru enn meiri brotalamir í þessu samstarfi. Það mun taka gríðarlega langan tíma að reyna að byggja það upp aftur. En ég ætla samt að minna okkur á, þegar við erum að hugsa um framtíðina, að það mun verða mikilvægt fyrir okkur að horfa á alþjóðasamvinnu á þessu svæði. Og af hverju? Jú, vegna þess að ef við horfum fram í tímann þá mun reyna á samskipti vegna nýrra siglingaleiða. Það mun reyna á samskipti vegna meiri auðlindanýtingar. Það mun reyna á það að Ísland eigi talsamband við sína vini, sína nánustu bandamenn og aðra svo hægt sé að greiða úr málum og í þeim samskiptum á Ísland að vera öflugur talsmaður samvinnu og talsmaður friðar.
Mig langar sérstaklega á þessum tímapunkti í dag að snúa mér að Grænlandi sem hefur nú heldur betur verið til umfjöllunar hér síðustu klukkutímana. Ísland stendur með Grænlandi. Ísland stendur að sjálfsögðu með sjálfsákvörðunarrétti Grænlendinga og við eigum að gera miklu betur þegar kemur að því að vinna með þeim. Ef við horfum aftur í tímann þá er áhugavert að við áttum okkur á því að bæði Ísland og Grænland voru undir vörnum Bandaríkjanna í seinni heimsstyrjöldinni. Það komu í raun miklu fleiri hermenn til Grænlands en síðan er það eftir seinna stríð sem Grænlendingar verða hluti af danska konungsríkinu. Þetta er á þeim tíma sem Sameinuðu þjóðirnar eru að reyna að ýta þjóðum til sjálfstæðis. Grænland verður hluti af danska konungsveldinu en við verðum sjálfstæð þjóð og það var ekkert sjálfgefið á þeim tíma. Þetta er á þeim tíma sem við erum í kringum 110.000–120.000. Þetta er á þeim tíma sem Ísland var tiltölulega ómenntuð þjóð. Við vorum ekki búin að byggja upp okkar innviði og kannski hefði verið eðlilegast að smáþjóðin hefði valið aðra valkosti en það var með áræðni og stuðningi, m.a. með Marshall-aðstoðinni, sem við byggðum upp innviði og það samfélag sem við eigum í dag, nýttum okkar auðlindir og erum sjálfstætt ríki í dag.
Mig langar til að bera þetta aðeins saman við sögu Grænlands. Á þessum tíma verður Grænland sem sagt hluti af danska konungsveldinu. Síðan hafa árin liðið og Grænlendingar hafa fengið meira sjálfstæði í gegnum tíðina en aldrei tekið skrefið til fulls þó að í sjálfu sér geti þeir farið þá leið miðað við núverandi löggjöf. En Grænlendingar hafa að mörgu leyti sömu tækifæri og Íslendingar höfðu. Þeir eiga ríkar auðlindir, vatnsafl er dæmi um slíka auðlind og þær eru miklu fleiri eins og hefur verið hér í umræðunni. Ástæðan fyrir því að það vaknaði sókn í sjálfstæðisbaráttu Grænlands var eins og á Íslandi. Hjá okkur var það ástin á tungumálinu, ástin á landinu, og það sama hefur verið uppi á teningnum í Grænlandi, miklu meiri vakning sem snýr að tungumálinu og menningunni og sem snýr að því að vilja standa á eigin fótum. Hins vegar hefur fjárhagsleg tenging við Danmörku komið í veg fyrir fullt sjálfstæði, m.a. kemur um helmingur tekna Grænlendinga á hverju ári frá Dönum. Eitt af því sem hefur verið talað um er hvernig Grænland geti þróað sínar auðlindir til að mæta þessum fjárútlátum og geti staðið á eigin fótum. Það er ágætt að horfa bara á síðustu kosningar. Þá mátti sjá að heilt yfir er gríðarlega mikill stuðningur við sjálfstæði Grænlands hjá þjóðinni.
Eitt af því sem er líka sameiginlegt með þeim og okkur er að landfræðileg lega er þannig að hún skiptir miklu fyrir öryggismál en hún hefur líka verið mikilvæg í samhengi við milliríkjaviðskipti og í gegnum flug. Þá möguleika höfum við nýtt og var grunnurinn að okkar velmegun en þeir möguleikar hafa ekki verið nýttir með sambærilegum hætti vegna þess að Grænlendinga skortir innviði. En árið 2024 var opnaður fyrsti alþjóðlegi flugvöllurinn á Grænlandi og síðan þá hefur samfélagið eflst, ferðaþjónusta eflst og möguleikarnir þar eru endalausir. Sennilega er Grænland ríkasta þjóð í heimi ef við horfum til þeirra möguleika sem þar eru, en þeir möguleikar hafa líka gert þá útsettari fyrir alþjóðapólitíkinni og baráttu um yfirráð eins og hefur birst okkur að undanförnu.
Mig langar að lokum að hvetja Ísland, á þessum tímum sem Grænlendingar eru að ganga í gegnum, til að virða og standa með Grænlendingum (Forseti hringir.) í þeirra ákvörðunum. Möguleikarnir eru allir þeirra og við eigum að vera öflugur bandamaður í að þeirra draumar raungerist.