157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

Staða alþjóðamála, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[19:06]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna og svarið og get tekið undir það. Ég held að fjölþáttaógnir séu ein mikilvægasta ógnin sem við þurfum að horfa til. Ég átta mig á því að lönd innan Evrópusambandsins hafa verið að byggja upp ákveðnar varnir og þar er ýmis sérfræðiþekking sem við höfum haft aðgengi að og getum unnið með Evrópusambandinu. Evrópusambandið hefur ekkert verið að segja nei við okkur í einhvers konar samstarfi. Við höfum til að mynda tekið þátt í — nú man ég ekki íslenska orðið yfir þetta en svona sérstakri miðstöð í, held ég örugglega, Eistlandi varðandi slíkar ógnir og haft tækifæri til þess að taka þátt í því. Ég er mjög hlynnt því og ég er algerlega sannfærð um að við þurfum að horfa mjög til fjölþáttaógna. Við þurfum að byggja upp bæði þekkingu innan lands en ekki síður að starfa með okkar bandamönnum og líkt þenkjandi þjóðum og Evrópusambandið er þar algjörlega undir. En þar geta líka verið Noregur, Kanada og Bandaríkin og fleiri ríki.

Hv. þingmaður kom hérna inn á að það væri breytt stefna í Bandaríkjunum og við þyrftum einhvern veginn að máta okkur inn í það. Þá ætla ég að segja: Ég er ósammála þeirri sýn að við þurfum einhvern veginn að velja, eins og mér fannst að hv. þingmaður væri svolítið að setja þetta upp, að valið stæði á milli þess að ganga annaðhvort í Evrópusambandið eða verða eitthvert ríki í Bandaríkjunum. Ég er þingmaður í sjálfstæðu landi, Íslandi. Ég vil að við verjum okkar sjálfstæði og fullveldi og ég tel að við getum gert það best með þeim hætti sem við höfum verið að gera. En við þurfum að halda áfram að berjast fyrir því að halda okkar sjálfstæði og halda okkar fullveldi. Það getum við gert í samstarfi við Evrópusambandið með EES-samningnum, í samstarfi okkar innan NATO og í öðru alþjóðasamstarfi. Það að ætla núna að setja Bandaríkin til hliðar, þó að maður sé ofboðslega ósáttur við núverandi forseta og orðræðu hans, held ég að væri barnaskapur. Hvort sem það er Ísland sem er að hugsa þannig eða Evrópusambandið sjálft, ég held að það sé vitleysa. Við þurfum á því að halda núna, meira núna en nokkru sinni fyrr, (Forseti hringir.) að vera í Bandaríkjunum og tala um þessa hagsmuni og það sem ég hef kannski verið að ræða sérstaklega hér er öryggi og friður á norðurslóðum.