sjúkratryggingar og ófrjósemisaðgerðir.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra Ölmu Möller fyrir andsvarið. Það er gott og vel og við í velferðarnefnd eigum eftir að fá þetta til okkar og fara ítarlega yfir þetta. Eins og ég kom inn á áðan og við vitum öll vel, þá er þetta mjög viðamikið og þetta er sitt lítið af hverju og fjöldi umsagna sem liggur í samráðsgáttinni sem við þurfum að fara betur sameiginlega yfir hversu nákvæmlega hefur verið tekið tillit til eða ekki. En ég hjó eftir því að það eru enn inni — manni finnst eins og það sé dálítið verið að tryggja samningsstöðu Sjúkratrygginga Íslands, það sé svona meginstefið í þessu frumvarpi núna, gagnvart þessum aðilum og þá eigum við eftir að takast á um það kannski eða fá það betur fram hvernig við getum tryggt að það sé ekki verið að íþyngja með nokkru móti sjálfstætt starfandi fólki í heilbrigðisgeiranum. Bara sá þáttur t.d. að heilbrigðisstarfsmenn þurfi í rauninni að færa sína starfsemi í ehf. og þvílíkt rekstrarform er mjög íþyngjandi og myndi leiða til mikilla útgjalda fyrir sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólk sem margir hverjir eru einyrkjar og þyrftu þá að fara sjálfir að leggja út í kostnað og ýmislegt slíkt. Þessir aðilar hafa áhyggjur af því að þetta sé ekki til þess að bæta þjónustu við almenning, bara það að gera þennan þátt málsins flóknari og erfiðari fyrir alla þessa sjálfstætt starfandi aðila sem eru okkur svo mikilvægir í heilbrigðiskerfinu. Það væri gott í seinna andsvari að fá viðbrögð við þeim áhyggjum sem einyrkjar og aðrir slíkir hafa af þessum kröfum um rekstrarformið og kannski aðeins um það hvort það hafi verið aðalmálið (Forseti hringir.) að styrkja samningsstöðu sjúkratryggingastofnunarinnar eins og hún er kölluð hérna.