157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

sjúkratryggingar og ófrjósemisaðgerðir.

328. mál
[20:14]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf) (andsvar):

Ég þakka þingmanninum fyrir spurninguna og átta mig ekki alveg á hvað hún meinar með að styrkja samningsstöðu. Það er auðvitað verið að styrkja Sjúkratryggingar Íslands og efla gegnsæi þannig að stofnunin geti farið sem best með okkar sameiginlega fé. Ég ráðlegg þingmanninum að lesa skýrslu Ríkisendurskoðunar sem kom út í sumar, hún er mjög fróðleg. En varðandi það að stofna einkahlutafélag þá nefndi ég að það verður áfram heimilt fyrir þá sem hafa minni umsvif að hafa samlagsfélag, kannski jafnvel upp að 100 millj. kr. árstekjum. Ég er ekki sammála því að þetta sé gríðarlega íþyngjandi fjárhagslega. Við stofnun einkahlutafélags þarf að leggja félaginu til hlutafé sem skal vera minnst 500.000 kr. og það er ekki kostnaður, það er auðvitað eign þess sem stofnar félagið. Kostnaðurinn sjálfur samkvæmt gjaldskrá er 140.000 kr. og svo er auðvitað einhver umsýslukostnaður vegna stofnskjala en þar gætu menn auðvitað hópað sig saman varðandi kostnað. Frumvarpinu er fyrst og fremst ætlað að gera Sjúkratryggingum Íslands betur kleift að sinna sínu hlutverki og það hallar á stofnunina samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoðunar varðandi samningsstöðu. Þetta með samningsleysið og eins og þetta var, að aðilar gætu sett aukagjöld, þá var ekki hvati fyrir sérfræðinga að semja. Nú er verið að jafna hvatann fyrir bæði viðsemjendur og Sjúkratryggingar Íslands því að stofnuninni er í raun óheimilt að borga fyrir heilbrigðisþjónustu sem ekki eru samningar um.