157. löggjafarþing — 58. fundur,  22. jan. 2026.

sjúkratryggingar og ófrjósemisaðgerðir.

328. mál
[20:16]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Varðandi þessa breytingu sem er verið að leggja hér til, að Sjúkratryggingar Íslands semji bara við einkahlutafélög eða hlutafélög, þá vekja furðu þau ummæli í greinargerð að það sé meira gagnsæi þegar kemur að einkahlutafélögum eða hlutafélögum. Það liggur fyrir að mjög margir hafa um rekstur heilbrigðisþjónustu og annan rekstur líka, alls kyns sérfræðirekstur, samlagsfélag en ekki einkahlutafélag eða hlutafélag eins og tíðkaðist kannski meira hér áður fyrr. Ástæðan fyrir því að þessi þróun hefur orðið er af ýmsum toga en alls ekki sú að það sé eitthvað minna gagnsæi þegar kemur að samlagsfélögum. Í samlagsfélögum, eins og kemur hér fram, ber a.m.k. einn aðili ótakmarkaða ábyrgð á starfseminni og samningum sem slíkt félag gerir við t.d. sjúkrastofnun. Einkahlutafélög og hlutafélög eru því marki brennd að þau eru félög um takmarkaða ábyrgð þannig að ég myndi nú halda að það þyrfti að skoða þetta aðeins betur, hvort það sé raunverulega til hagsbóta fyrir Sjúkratryggingar Íslands að gera viðskipti við félag með takmarkaða ábyrgð frekar en samlagsfélag sem felur í sér ótakmarkaða ábyrgð á skuldbindingum félagsins.

Mig langar hins vegar að spyrja hæstv. ráðherra um þá tillögu sem gerð er um að leggja niður stjórn Sjúkratrygginga Íslands. Þessi umræða hefur komið upp hérna líka og það var ákveðið að leggja niður stjórn Tryggingastofnunar hér fyrir jól, ekki með mínu atkvæði. Ég velti því fyrir mér nákvæmlega hver rökin eru fyrir því. Það er talað um að það eigi að koma fagráð en ég sé þess ekki stað í frumvarpinu í fljótu bragði. Hver eru nákvæmlega rökin fyrir því að leggja niður stjórn í svona stofnun sem veltir mörg hundruð milljörðum?