tenging bóta almannatrygginga við launavísitölu.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Það er í sjálfu sér áhugavert að hæstv. ráðherra sé ósammála mati fjármála- og efnahagsráðuneytisins, sem er auðvitað skrifstofa hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, þar sem fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur sagt, með leyfi forseta, að ráðuneytið geti tekið undir að ekki liggi fyrir fullnægjandi greiningar á áhrifum breytingarinnar. Ég vil þá nota þetta tækifæri í minni seinni fyrirspurn og spyrja hæstv. ráðherra hvort hann sé þess fullviss og sé þá líka ósammála því mati ráðuneytisins að greining á áhrifum málsins sé ófullnægjandi. Og ef svo er, hvers vegna tíminn hafi ekki verið nýttur til að bæta úr því? Það er orðið alllangt síðan málið kom fyrst fram, þ.e. að með því að festa hækkanir greiðslna almannatrygginga við þróun launavísitölu án þess að tekið sé mið af breyttum aðstæðum með tekjustofnum ríkisins gæti það dregið úr möguleikum stjórnvalda til að bregðast við efnahagssveiflum. Ég spyr þá hvort ráðherrann sé tilbúinn að færa þær fórnir sem það kallar á ef áhyggjur fjármála- og efnahagsráðuneytisins raungerast.