157. löggjafarþing — 61. fundur,  29. jan. 2026.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

[10:34]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Forseti. Ég er kominn hingað upp til að taka undir með hv. þingmönnum sem hafa komið á undan mér og lýsa yfir furðu minni á því að málið skuli koma fyrir þingið með þessum hætti. Það er búið að vera, að mér skilst, í það minnsta tveir fundir sem hafa fallið niður núna í hv. atvinnuveganefnd þar sem höfðu verið tækifæri til að ræða þetta mál og kalla fyrir gesti, til að mynda meðal umsagnaraðila, og það hefur ekki verið gert. Ég tel, og tek undir það, að sú ágæta stemning, sá ágæti andi sem hefur verið í þinginu fram til þessa, frú forseti, að hér sé mögulega verið að rugga þeim báti. Ég beini því orðum mínum til hæstv. forseta og hvet hann til að taka málið út af dagskrá og senda það aftur inn í nefnd svo það gefist frekari tækifæri til að ræða málið þar.