157. löggjafarþing — 61. fundur,  29. jan. 2026.

þróun efnahagsmála.

[11:02]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Ég átta mig ekki alveg á hverju hæstv. ráðherra var að svara því að það svaraði klárlega ekki minni spurningu og varðaði bara hreinlega nákvæmlega ekkert af því sem ég sagði. En ég hef samúð með hæstv. ráðherra vegna þess að hann þarf að standa undir því að koma þessu svokallaða plani til leiðar og ég hugsa að hann viti hreinlega ekki í hverju planið er fólgið. Það snýst í rauninni um það að hann er að svara hér kröfu um verulegar útgjaldahækkanir af hálfu eins stjórnarflokksins og ég hef samúð með ráðherranum að þurfa að glíma við það. En hann þarf ekki að afsaka sína stöðu í því máli enda er hann ekki pólitíkus, hann hefur lýst því yfir.

En, frú forseti, hvenær ætlar þessi ríkisstjórn að hlusta? Hvert er planið núna? Eiga heimilin í landinu að blæða endalaust fyrir óábyrg útgjaldaloforð ríkisstjórnarinnar, þetta svokallaða plan sem er augljóslega að hafa bein áhrif á bókhald heimilanna þvert á kosningaloforð? Það stendur vart steinn yfir steini í þeim hagræðingaraðgerðum sem ríkisstjórn þessi hefur boðað. Dropi í hafið, nákvæmlega ekkert meira. Hvert er plan ríkisstjórnarinnar núna? Ætla þau að halda ótrauð áfram á núverandi braut skattahækkana á kostnað heimilanna í landinu eða stendur til að endurskoða einhverjar (Forseti hringir.) af þessum skattahækkunum og kannski hlusta á viðvörunarorð stjórnarandstöðunnar í framtíðinni? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)