forgangsröðun þingmannamála.
Virðulegur forseti. Almennt fagna ég því þegar þingmannamál komast hér á dagskrá til 2. umræðu. Það er til mikilla bóta. En auðvitað þarf það að vera svo að málin séu almennilega unnin. Í ljósi þeirra orða sem hæstv. forseti fór með áðan verð ég að fá að minna á það loforð sem ég tel mig hafa fengið hér í þessum þingsal um að mitt þingmál — það er með mun lægra númeri en málið sem við ræðum og er á dagskrá í dag — komist til 2. umræðu; hv. þm. Víði Reynisson lofaði mér í pontu að það kæmist til 2. umræðu og yrði ekki hluti af einhverju samkomulagi flokkanna. Ég dró til baka breytingartillögu til þess að gefa gott veður fyrir því að þetta mætti ná fram að ganga. Ég vona að virðulegur forseti hafi slíkt samkomulag í huga. Það væri kannski betra að setja slíkt mál á dagskrá, mál sem varðar dreifingu ösku, að gefa það frjálst; mál sem kostar ríkissjóð ekki neitt; mál sem setur grunnatvinnuvegi þjóðarinnar ekki í uppnám; mál sem er bara til þess gert að geta orðið við hinstu ósk látinna einstaklinga.