157. löggjafarþing — 64. fundur,  29. jan. 2026.

framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.

90. mál
[20:06]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni Víði Reynissyni fyrir áframhaldandi umfjöllun um jafnréttisáætlun. Já, skilaboð mín til allra eru þau sömu: Standið með sjálfum ykkur. Ekki lifa í trú um að það hvernig þið eruð þurfi að gera ykkur að eilífum fórnarlömbum. Í þessum hugmyndum sem stjórnvöld hafa og vilja auðvitað að menn — þessi hugmyndafræði kynjajafnréttisáætlunar, eða svo sem ekki í sjálfu sér þessarar áætlunar, en þessi almenna umræða gengur svolítið út á að samfélagið einhvern veginn skiptist í misjaðarsetta hópa og það sé hægt að reikna út stig af jaðarsetningu. Það er hreinlega fólk sem vinnur við að gera þetta svona; þessi er aðeins jaðarsettari út af þessum þætti og þessum þætti. En mín skilaboð eru alltaf þau að þessi hugsunarháttur geri alla jafna lítið úr getu einstaklingsins til að fullkomna sitt líf á eigin forsendum. Hann framselur valdið úr höndum þeirra og færir það til einhverra kúgunarkerfa sem, eins og ég segi, ef maður reiknar það út getur vel verið að einhver sannleikskorn reynist í, sannarlega. Ég er ekkert að draga úr því. En spurningin er um það hvernig einstaklingurinn reynir að fóta sig í tilverunni. Er það með því að einblína á réttlæti, meint og raunverulegt? Eða er það með því að fólk treysti á sjálft sig og byggi sig upp og hafni því að mótlæti einhvern veginn skilgreini það frekar en bara að verðleikar fólks skilgreini það? Það er sannarlega þannig. Ég tala nú ekki um, af því að hv. þingmaður nefnir ofbeldi eða aðkast — ég hef aldrei lýst mér öðruvísi en sem mjög andsnúnum öllum slíkum andstyggilegheitum sama að hvaða hópum þau beinast. Ég veit ekki alveg hvort það sé viðeigandi (Forseti hringir.) að bera þau hér á borð eins og maður sé með gagnrýnni umræðu einhvern veginn að lýsa öðru yfir en að maður sé mjög andsnúinn slíku.