157. löggjafarþing — 65. fundur,  2. feb. 2026.

hækkun skatta og gjalda.

[15:07]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir hans spurningu. Ég vil í þessu samhengi árétta að ég hef ekki bent með neinum hætti sök hingað og þangað heldur einungis farið yfir skýringar á þeim breytingum sem urðu á vísitölu neysluverðs.

Mig langar að nýta þetta tækifæri til að renna aftur í stuttu máli yfir hvaða leiðir eru notaðar í hagkerfum eins og okkar til að stilla af eftirspurn og draga úr verðbólguþrýstingi. Það þarf ekki að kynna fyrir hv. þingmönnum að það er Seðlabanki Íslands sem hefur völd til að setja stýrivexti. Stýrivextir eru beinlínis hannaðir til þess og hafa það markmið að auka kostnað og draga úr eftirspurn. Þannig að stutta svarið við spurningu hv. þingmanns er að hækkanir á gjöldum hafa hliðstæð áhrif og stýrivaxtahækkanir. Ég ætla hins vegar að vera algjörlega sanngjarn við hv. þingmann og taka undir með honum. Það mun að sjálfsögðu hafa áhrif og þess vegna þarf að fara varlega í slíkar breytingar. Það er mjög mikilvægt að við finnum, bæði í aðgerðum Seðlabankans en líka ríkisins, einhvers konar jafnvægi á milli þess að hvetja til verðmætasköpunar og stilla langtímavaxtargetu hagkerfisins og vöxt eftirspurnar nokkurn veginn inn í sama rammann. Það sem hefur brugðist í gegnum tíðina í hagstjórn á Íslandi er nákvæmlega það og það er þess vegna sem við erum að vinna eftir áætlun um aðhald og jafnvægi í rekstri ríkisins á næsta ári.