framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026--2029.
Frú forseti. Kannski bara nokkur orð um þessa tillögu sem tekur til þriggja ára, 2026–2029. Þetta er raunar tillaga sem þingið er með til meðferðar í þriðja sinn. Í því samhengi má velta því fyrir sér hvort það væri skilvirkara að geta afgreitt svona með öðrum hætti. Hér eru fram fengnar tillögur frá öllum ráðuneytum, úr samráðshópum og heildarkostnaður á þessari framkvæmdaáætlun er í kringum 48 milljónir, heilar 12 millj. kr. á ári. Málaflokkarnir varða atriði eins og betri tölfræði í jafnréttismálum, jafnrétti á vinnumarkaði, kynbundið ofbeldi, ekki síst gegn stúlkum, íþrótta- og æskulýðsstarf, alþjóðastarf og áhrif og þátttöku í samfélaginu. Ég lít svo á að þetta mál sé gott og það sé mikilvægt og minni þingheim á að það er af ástæðu sem Íslendingar hafa náð árangri í jafnréttismálum, vegna þess að við höfum borið gæfu og þroska til að ræða þau og taka þau alvarlega.